Hvítabjörn, Líbanon og sígarettusmygl rafrettukónga episode artwork

EPISODE · Sep 19, 2024 · 20 MIN

Hvítabjörn, Líbanon og sígarettusmygl rafrettukónga

from Spegillinn

Fyrsti hvítabjörninn sem gengið hefur á land síðan 2016 var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir dýrið hafa verið aflífað eins snyrtilega og hægt var en vill ekki gefa upp hverjir það voru sem felldu björnin en bæði lögreglumenn frá lögreglunni á Vestfjörðum og séraðgerðardeild Landhelgisgæslunnar voru á staðnum, lögreglumennirnir á björgunarbátnum Kobba Lák en sérðagerðardeildin um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, um verklagið sem er viðhaft þegar hvítabjörn gengur á land á Íslandi. Á fjórða tug létust og á fjórða þúsund særðust, þar af eru nær þrjú hundruð með lífshættulega áverka, þegar þúsundir símboða og talstöðva voru sprengdar í loft upp í Líbanon í gær og fyrradag. Talið er að litlu magni af mjög öflugu sprengiefni hafi verið komið fyrir í tækjunum á einhverju stigi framleiðslunnar, og sprengibúnaðurinn svo virkjaður með því að senda boð í tækin. Allt þykir benda til þess að Ísraelar hafi verið að verki, nánar tiltekið ísraelska leyniþjónustan Mossad. Vesturlandabúar búast flestir við því að allt verði nú vitlaust í herbúðum Hezbollah, sem hyggi á skjótar og grimmilegar hefndir. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, sem þekkir vel til í Líbanon, segir það misskilning. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana. Tveir karlmenn, sem báðir hafa hagnast vel á rafrettusölu til Íslendinga, hafa verið ákærðir fyrir eitt mesta sígarettusvindl Íslandssögunnar ásamt starfsmanni flutningafyrirtækis. Á árunum 2015 til 2018 eru athafnamennirnir tveir sagðir hafa flutt til landsins rúmlega 125 þúsund karton af sígarettum í gegnum félag án þess að greitt væri tóbaksgjald af vörunum upp á rúmlega 740 milljónir. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

NOW PLAYING

Hvítabjörn, Líbanon og sígarettusmygl rafrettukónga

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on September 19, 2024.

What is this episode about?

Fyrsti hvítabjörninn sem gengið hefur á land síðan 2016 var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir dýrið hafa verið aflífað eins snyrtilega og hægt var en...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!