Ia Genberg, Queer Situations og Eiríkur Laxdal episode artwork

EPISODE · Aug 31, 2024 · 51 MIN

Ia Genberg, Queer Situations og Eiríkur Laxdal

from Bara bækur

Sænski rithöfundurinn Ia Genberg var gestur á hinsegin bókmenntahátíðinni Queer situations. Nýjasta skáldsaga hennar, Smáatriðin (Detaljerne), kom henni rækilega á kortið árið 2022. Smáatriðin er metsölubók sem þýdd hefur verið á fjölda tungumála, meðal annars ensku í fyrsta sinn og hefur hún vakið gríðarlega athygli, komst á stuttlista alþjóðlegu Booker verðlaunana í ár og hlaut einnig hin virtu Augustpriset verðlaun. Smáatriðin kom út í íslenskri þýðingu Þórdísar Gísladóttur hjá Benedikt bókaútgáfu árið 2023. Ia Genberg er gestur þáttarins. Við segjum líka aðeins frá hulduhöfundi í íslenskri bókmenntasögu, Eiríki Laxdal Eiríkssyni, sem uppi var á 18. öld og byrjun þeirrar nítjándu. Undanfarna áratugi hefur betra ljósi verið brugðið á verk Eiríks sem lengst af voru bara til í handritum. Haldin var ráðstefna á dögunum í Eddu húsi íslenskunnar - „Óland kortlagt: Skáldskapur Eiríks Laxdals í íslensku og alþjóðlegu samhengi“ sem Árnastofnun og Bókmennta- og listfræðistofnun Háskóla Íslands stóðu fyrir. Þar var markmiðið var að vekja athygli á vanmetnu framlagi Eiríks Laxdal til bókmenntanna og bregða skýru ljósi á samhengi hans í bókmenntasögunni. Við ræðum við Lenu Rohrbach, prófessor við Háskólann í Basel í Svissog doktorsnemann Maditu Knöpfle en rannsóknir þeirra beggja hafa beinst að Eiríki og þróun skáldsögunnar á 18. öld. Viðmælendur: Ia Genberg, Lena Rohrbach og Madita Knöpfle Umsjón: Jóhannes Ólafsson

NOW PLAYING

Ia Genberg, Queer Situations og Eiríkur Laxdal

0:00 51:10

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 51 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on August 31, 2024.

What is this episode about?

Sænski rithöfundurinn Ia Genberg var gestur á hinsegin bókmenntahátíðinni Queer situations. Nýjasta skáldsaga hennar, Smáatriðin (Detaljerne), kom henni rækilega á kortið árið 2022. Smáatriðin er metsölubók sem þýdd hefur verið á fjölda tungumála,...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!