Íslandsmót skákfélaga og Reykjavíkurskákmótið: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson episode artwork

EPISODE · Mar 13, 2024 · 59 MIN

Íslandsmót skákfélaga og Reykjavíkurskákmótið: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru FIDE meistararnir Sigurbjörn Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks. Þeir ræddu um nýafstaðið Íslandsmót skákfélaga en lið þeirra urðu sigurvegarar úrvalsdeildar og 1. deildar. Firnasterk skákdeild Fjölnis varð Íslandsmeistari skákfélaga og skákdeild Breiðabliks varð efst í 1. deild og tekur því sæti í úrvalsdeildinni í haust.Þeir Halldór og Sigurbjörn ræddu einnig fyrirkomulag Íslandsmótsins en þeir vilja gera smávægilegar breytingar á úrvalsdeildinni. Frábær árangur Alexandr Domalchuk-Jónassonar kom til tals en hann náði lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli ásamt fyrst áfanga sínum að stórmeistartitli á Íslandsmótinu. Halldór greindi að hluta frá nýrri metnaðarfullri 5 ára áætlun skákdeildar Breiðabliks um að styðja við bakið á ungum og efnilegum liðsmönnum skákdeilarinnar, bæði fjárhagslega og félagslega. Hann tók skýrt fram að hluti áætlunarinnar væri "hernaðarleyndarmál" en stefnt væri meðal annars á að úr afrekshópi þeirra kæmu nokkrir titilhafar innan 5 ára.Reykjavíkurskákmótið kom einnig til tals en það hefst á föstudaginn kl. 15:00 og stendur yfir dagana 15. til 21. mars. Á meðal keppenda er  Úkraínumaðurinn Vasyl Ivanchuk, fyrrum heimsmeistari í hraðskák og atskák. Hann var á sínum tíma annar stigahæsti skákmaður heims með 2787 eló-skákstig. Hann er talinn af mörgum kollegum sínum einn mesti snillingur skáklistarinnar. Heimasíða og dagskrá Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu tónlistarhúsi

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 13, 2024

Embed this episode

Ready to play

Íslandsmót skákfélaga og Reykjavíkurskákmótið: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson

0:00 59:52

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 59 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on March 13, 2024.

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!