Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB episode artwork

EPISODE · Jun 18, 2026 · 25 MIN

Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB

from Gímaldið · host Gímaldið

Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka ef af aðildarviðræðum verður. Erla Hlynsdóttir ræðir við Gauta Kristmannsson um stöðu íslenskrar tungu í tengslum við mögulegar aðildarviðræður við ESB. Það helsta úr viðtalinu:Gangi ríki í ESB verður tungumál þess sjálfkrafa eitt af opinberum málum sambandsins. Hver borgari aðildarríkis á rétt á að eiga samskipti við stofnanir sambandsins á eigin móðurmáli og fá öll lög og reglugerðir á sínu tungumáli.Hugmyndir um að fækka opinberum tungumálum sambandsins hafa ekki fengið hljómgrunn. Hvert ríki hefur neitunarvald og „það vill enginn fórna sínu tungumáli".Þegar síðustu aðildarviðræður fóru fram var túlkanám við Háskóla Íslands eflt fyrir tilstilli ESB.Að mati Gauta steðja meiri ógnir að íslenskunni innanlands og frá bandarískum tæknirisum, en nokkurn tíma frá Brussel.Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. 

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 18, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB

0:00 25:07

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Gímaldið?

This episode is 25 minutes long.

When was this Gímaldið episode published?

This episode was published on June 18, 2026.

Can I download this Gímaldið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!