Skip to content
Íþróttarabb HR // 1. þáttur: Clive Brewer episode artwork

Sep 21, 2023 50 min

Íþróttarabb HR // 1. þáttur: Clive Brewer

from Íþróttarabb HR Hosted by Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Í fyrsta þætti af Íþróttarabbi HR á Spotify er rætt við Clive Brewer sem er einn þeirra erlendu sérfræðinga sem kemur reglulega hingað til lands að kenna nemendum meistaranáms íþróttafræðinnar í HR. Sérsvið Clive er styrk- og þrekþjálfun og afreksþjálfun. Hann hefur víðtæka reynslu af líkamlegri þjálfun íþróttafólks allt frá börnum til Ólympíufara. Clive hefur skrifað hagnýtar kennslubækur fyrir þjálfara í styrk- og þrekþjálfun með æfingum og góðum ráðum. Undanfarin ár hefur hann mest starfað í Bandaríkjunum í tengslum við hafnabolta og fótbolta, en nú síðast sem stjórnandi afreksíþróttamiðstöðvar Ortho Arizona. Áður hafði hann unnið á Bretlandseyjum með stórum knattspyrnuliðum í úrvalsdeildinni, rúgbýliðum, sérsamböndum og fagfélögum. Íþróttarabb HR er ný þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu. Það er Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, sem ræðir við Clive. Sérsvið Sveins er íþróttaþjálfun og nánar tiltekið þjálffræði, afreksþjálfun og handknattleikur. Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf. HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptasvið HR sem er umsjónaraðili hlaðvarpsins ([email protected]). Framleiðendur HR hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Í fyrsta þætti af Íþróttarabbi HR á Spotify er rætt við Clive Brewer sem er einn þeirra erlendu sérfræðinga sem kemur reglulega hingað til lands að kenna nemendum meistaranáms íþróttafræðinnar í HR. Sérsvið Clive er styrk- og þrekþjálfun og afreksþjálfun. Hann hefur víðtæka reynslu af líkamlegri þjálfun íþróttafólks allt frá börnum til Ólympíufara. Clive hefur skrifað hagnýtar kennslubækur fyrir þjálfara í styrk- og þrekþjálfun með æfingum og góðum ráðum. Undanfarin ár hefur hann mest starfað...

Ready to play

Íþróttarabb HR // 1. þáttur: Clive Brewer

0:00 50:31

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Íþróttarabb HR?

This episode is 50 minutes long.

When was this Íþróttarabb HR episode published?

This episode was published on September 21, 2023.

Can I download this Íþróttarabb HR episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.