Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn episode artwork

EPISODE · Aug 25, 2026 · 32 MIN

Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn

from Gímaldið · host Gímaldið

Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, setur sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Herdísi um stöðuna í norskri pólitík og um það hvort Norðmenn eru eitthvað að pæla í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi og hvaða áhrif hún gæti haft. Meðal þess sem rætt er í þættinum:Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Noregs vilja ganga í Evrópusambandið, en frumkvæði að samtali um það yrði að koma frá grasrót VerkamannaflokksinsEvrópumálin hafa legið í láginni undanfarin ár en merki eru um að aukinn áhugi sé að myndastTollar á járnblendi hreyfðu við umræðu um stöðu EES-samningsinsSegi Íslendingar já í þjóðaratkvæðagreiðslu verður það klárlega innspýting og innblástur fyrir Norðmenn að fara inn í samtalið um framtíð EES og mögulega aðild að ESBÍ fyrsta skiptið síðan 1994 eru fleiri kjörnir fulltrúar opnir fyrir aðild og skoðanakannanir sýna breytingu meðal almenningsVerkamannaflokkurinn, flokkur forsætisráðherra, er klofinn í afstöðu til aðildar en Høyre, systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, er yfirlýstur EvrópuflokkurNoregur situr ekki við borðið þegar stærstu ákvarðanir um varnarmál eru teknar og það ergir stjórnmálamenn sem vilja meira vægi Norðmanna í þeim ákvörðunum, vægi sem ekki fæst með EESÁhrifaleysi EES-samningsins hefur töluvert verið rætt í Noregi og sú staða sem upp gæti komið ef Noregur situr eftir í EES, bara með Lichtenstein – sem er á stærð við KópavogÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Aug 25, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn

0:00 32:55

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Gímaldið?

This episode is 32 minutes long.

When was this Gímaldið episode published?

This episode was published on August 25, 2026.

Can I download this Gímaldið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!