Jólaheilsa - Njóttu hátíðanna án matviskubits. (Heilsumoli 6) episode artwork

EPISODE · Dec 19, 2023 · 2 MIN

Jólaheilsa - Njóttu hátíðanna án matviskubits. (Heilsumoli 6)

from Með lífið í lúkunum · host HeilsuErla

Á þessum árstíma er oft mun meira af freistingum í kringum okkur, konfekt, smákökur og alls kyns gotterí og þá er einfaldlega líklegra að við borðum meira af því en áður. Þá er bara að vera meðvitaður um það en ekki að banna sér allt!Njóttu hátíðanna! Þetta snýst ekki um hvað þú borðar milli jóla og nýárs heldur hvað þú borðar milli nýárs og næstu jóla. Þetta snýst um stöðugleika og að borða yfirleitt holla og góða fæðu en að leyfa sér af og til (80/20 reglan). Það sama á við um jólin og þó að við leyfum okkur aðeins meira en venjulega á slíkum dögum þá þýðir ekkert að hafa samviskubit (matviskubit) yfir því og fara alveg í mínus og ætla svo ekkert að borða í janúar. Það gerir bara illt verra.Ef þú vilt samt sem áður huga að heilsunni yfir hátíðirnar þá skaltu hreyfa þig reglulega, fara í göngutúr eftir mat, borða eitthvað holt á undan gotteríinu til þess að fóðra magan (til dælmis fá þér tómat, harðfisk eða hnetur á undan konfektinu) því að það hægir á upptöku kolvetna og minnkar blóðsykursveiflur.Mundu að borða líka hollan mat en leyfðu þér bara að NJÓTA jólakræsinganna. Hafðu gaman, vertu með fjölskyldu og vinum, borðaðu góðan mat og hlægðu mikið og nærðu þannig félagslegu heilsuna.Njótum hvers bita og borðum í núvitund! Þá ósjálfrátt borðum við aðeins minna, í stað þess að skófla ofan í okkur í meðvitundarleysi.Gleymdu svo ekki að gefa þér tíma fyrir þig, gerðu eitthvað sem nærir þig andlega hvort sem það er að púsla, slaka á, lesa bók, hlusta á hljóðbók, vera úti í náttúrunni, elda, mála eða eitthvað allt annað.Gleðilega hátíð!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Á þessum árstíma er oft mun meira af freistingum í kringum okkur, konfekt, smákökur og alls kyns gotterí og þá er einfaldlega líklegra að við borðum meira af því en áður. Þá er bara að vera meðvitaður um það en ekki að banna sér allt! Njóttu hátíðanna! Þetta snýst ekki um hvað þú borðar milli jóla og nýárs heldur hvað þú borðar milli nýárs og næstu jóla. Þetta snýst um stöðugleika og að borða yfirleitt holla og góða fæðu en að leyfa sér af og til (80/20 reglan). Það sama á við um jólin og þó...

NOW PLAYING

Jólaheilsa - Njóttu hátíðanna án matviskubits. (Heilsumoli 6)

0:00 2:27

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Með lífið í lúkunum?

This episode is 2 minutes long.

When was this Með lífið í lúkunum episode published?

This episode was published on December 19, 2023.

What is this episode about?

Á þessum árstíma er oft mun meira af freistingum í kringum okkur, konfekt, smákökur og alls kyns gotterí og þá er einfaldlega líklegra að við borðum meira af því en áður. Þá er bara að vera meðvitaður um það en ekki að banna sér allt!Njóttu...

Can I download this Með lífið í lúkunum episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!