Kaldur blettur í hitnandi heimi, tímamótadómur yfir Google episode artwork

EPISODE · Aug 9, 2024 · 10 MIN

Kaldur blettur í hitnandi heimi, tímamótadómur yfir Google

from Spegillinn

Kuldapollur, eða blár blettur, sem myndast hefur í hafinu suður af landinu er ein helsta ástæða þess að þau methlýindi sem geisað hafa á Jörðinni að undanförnu hafa að mestu sneitt hjá Íslandi í sumar. Kuldapollurinn er afleiðing óstöðugleika í svokallaðri veltihringrás hafstrauma, eða AMOC, einskonar blöndunartækjum hafsins sem blanda heitum yfirborðssjó við kaldandjúpsjó. Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni, segir afar ólíklegt að téður kuldapollur verði varanlegur. Það gerist aðeins ef loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á veltihringrásina fara yfir ákveðinn vendipunkt og breytingarnar verði óafturkræfar. Enn séu engin merki um að komið sé að slíkum vendipunkti og því mun líklegra breytingarnar gangi til baka, segir Halldór. Það breytir því ekki, að jafnvel í vísindatímaritum hafa birst stríðsfyrirsagnir á þá leið, að veltihringrásin geti hrunið fljótlega og það á örfáum árum. Linda Blöndal ræðir við Halldór. Bandarískur alríkisdómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að tæknirisinn Google hafi náð eða í það minnsta viðhaldið yfirburðastöðu leitarvélar sinnar á markaði með ólögmætum hætti - misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Dómurinn féll eftir fjögurra ára málaferli. Þau snerust um að Google hefði greitt stórum tæknifyrirtækjum á borð við Apple og Samsung milljarða dollara fyrir að beina netleit í tölvum og snjallsímum sjálfkrafa að leitarvél Google. Þetta hafi fyrirtækið svo nýtt sér til að afla meiri auglýsingatekna, ekki bara með því að fjölga auglýsingum heldur líka hækka verðið á þeim umfram það sem eðlilegt gæti talist á frjálsum markaði. Hallgrímur Indriðason segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

NOW PLAYING

Kaldur blettur í hitnandi heimi, tímamótadómur yfir Google

0:00 10:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 10 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on August 9, 2024.

What is this episode about?

Kuldapollur, eða blár blettur, sem myndast hefur í hafinu suður af landinu er ein helsta ástæða þess að þau methlýindi sem geisað hafa á Jörðinni að undanförnu hafa að mestu sneitt hjá Íslandi í sumar. Kuldapollurinn er afleiðing óstöðugleika í...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!