EPISODE · Jun 10, 2026 · 14 MIN
Kaldvík í brimróti á Austfjörðum
from Þetta helst
Laxeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum á í verulegum fjárhagslegum erfiðleikum um þessar mundir. Ástæðan er fyrst og fremst tap vegna vetrarsára og laxadauða hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið þurfti meðal annars að slátra löxum hjá sér sex mánuðum á undan áætlun vegna þessa. Kaldvík ætlaði sér að framleiða ríflega sextán þúsund tonn af eldislaxi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en endaði á því að framleiða aðeins 10.700 tonn. Fyrirtækið tapaði rúmlega 26 milljónum evra á ársfjórðungnum, eða 3, 7 milljörðum króna. Til samanburðar hagnaðist Kaldvík um tæplega 10 milljóna evra á fyrsta ársfjórðungi ársins 20025. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Kaldvíkur sem kynnt var í byrjun júní. Fjallað er um uppgjörið og stöðu Kaldvíkur í dag. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
NOW PLAYING
Kaldvík í brimróti á Austfjörðum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 2, 2026 ·47m
Jul 1, 2026 ·59m
Jun 26, 2026 ·26m
Jun 25, 2026 ·63m
Jun 25, 2026 ·56m