Kaup Landsbankans á TM, stríðið í Súdan og verðandi mæður í ofþyngd episode artwork

EPISODE · Apr 15, 2024 · 20 MIN

Kaup Landsbankans á TM, stríðið í Súdan og verðandi mæður í ofþyngd

from Spegillinn

15. apríl 2024 Bankasýslan skilaði á föstudag skýrslu um kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Bankasýslan finnur kaupunum og aðdraganda þeirra flest til foráttu og undrast að valin hafi verið eina leiðin sem hvorki kallaði á aðkomu né samþykki hluthafa. Kaupin hafa dregið dilk á eftir sér og sýnist sitt hverjum, eins og Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir í umfjöllun sinni um málið. Við heyrum í Helgu Björk Eiríksdóttur, fráfarandi bankaráðsformanni Landsbankans, Tryggva Pálssyni, stjórnarformanni Bankasýslunnar, Lilju Dögg Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra. Fyrir réttu ári, 15. apríl 2023, brutust út blóðug átök milli súdanska stjórnarhersins og hinnar vopnuðu hreyfingar RSF í Kartúm, höfuðborg Súdans. Tólf mánuðum síðar eru hátt í tíu milljónir karla, kvenna og barna á vergangi, Tugþúsundir almennra borgara hafa verið drepnar og tugir þúsunda dáið af völdum hungurs og sjúkdóma sem rekja má beint til stríðsins, aðallega börn. Þótt stríðið hafi staðið í ár er sagan á bak við það heldur lengri. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í þeirri blóðugu sögu og ræðir við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Mikilvægt er að ræða um ofþyngd og offitu af nærgætni og forðast fordóma, segir Kamilla Dóra Jónsdóttir læknanemi, sem vann að nýlegri rannsókn á þyngd kvenna á meðgöngu. Rannsóknin sýnir að 30% þeirra flokkuðust með offitu við upphaf meðgöngunnar. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman og ræddi við Kamillu Dóru. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 15, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Kaup Landsbankans á TM, stríðið í Súdan og verðandi mæður í ofþyngd

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on April 15, 2024.

Can I download this Spegillinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!