Kichin, Njáluhöfundur og Himna episode artwork

EPISODE · Jun 15, 2026 · 50 MIN

Kichin, Njáluhöfundur og Himna

from Víðsjá

Í Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í þætti dagsins gerum við okkur ferð í Norræan húsið og tökum sýningarstjórann Thomas Pausz tali um Himnu. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkur frá skáldunum sem sömdu Íslendingasögurnar og endar á Njáls sögu. Var höfundurinn einhver frændi Snorra Sturlusonar - eða kannski frænka hans? Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur en upphafi miðaðist galleríið við eina óræða mublu sem þau fundu í Góða hirðinum. Mublan fékk heimili í vinnustofu þeirra í Listaháskólanum og með tímanum umbreyttist hún í sýningarrými. Í fyrra fór Kichin svo í samstarf við listahátíð í Reykjavík og úr urðu sex sýningar sem hófu göngu sína við upphaf listahátiðar og opna með viku millibili fram í júlí. Í þættinum lítum við inn í Kling og Bang og fáum að heyra af verkefninu.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 15, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Kichin, Njáluhöfundur og Himna

0:00 50:59

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 50 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on June 15, 2026.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!