Kvennaverkfall og vanmat í samningi við Microsoft episode artwork

EPISODE · Oct 23, 2023 · 30 MIN

Kvennaverkfall og vanmat í samningi við Microsoft

from Spegillinn

23. október 2023 Fjármálaráðuneytið vanmat breytingar sem fylgdu heildarsamningi við Microsoft fyrir fimm árum, og væntingar um hátt í sex milljarða króna árlegan sparnað gengu ekki eftir. Þetta er meðal niðurstaðna í úttekt Ríkisendurskoðunar. Héraðsdómur verður að dómi Landsréttar að taka hryðjuverkamálið til efnislegrar umfjöllunar þó að ákæru hafi verið vísað frá í tvígang. Gengi bréfa í Marel hækkaði mjög þegar spurðist út að erlendir fjárfestar vildu taka það yfir. Von er á miklum fjölda í miðborg Reykjavík í tilefni kvennaverkfalls á morgun. Verkfallið hefur til dæmis mikil áhrif skólastarf og ríkisstjórnarfundi hefur verið frestað. Offramboð varð á ákveðnum tegundum af útiræktuðu grænmeti eftir sumarið. Formaður félags garðyrkjubænda segir erfitt að keppa við ódýrar vörur frá Evrópu. Bullandi síldveiði er fyrir vestan land; skipstjórinn á Beiti er á heimstími með rúmlega 1.400 tonn. ---------------- Í aðdraganda kvennafrísins 1975 vissu menn varla hvernig átti að taka því og á stundum var reynt að slá því upp í grín. Viðhorfið breyttist í ljósi þátttöku og heimsathygli, segir sagnfræðingur og einn skipuleggjenda kvennaverkfallsins á morgun segir að þó að áfram hafi miðað sé baráttunni ekki lokið, ekki síst gegn kynbundnu ofbeldi. Nýjustu vendingar í dönskum stjórnvöldum urðu í morgun, þegar formaður hægri flokksins, Venstre, Jakob Ellemann-Jensen, tilkynnti að hann væri hættur afskiptum af dönskum stjórnmálum Samviskubit líka kvíði og skömm hefur mikil áhrif á líf mjög magra mæðra en við sjáum ekki sama mynstur hjá feðrunum segir lektor í uppeldis og menntunarfræði á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir.

NOW PLAYING

Kvennaverkfall og vanmat í samningi við Microsoft

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 30 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on October 23, 2023.

What is this episode about?

23. október 2023 Fjármálaráðuneytið vanmat breytingar sem fylgdu heildarsamningi við Microsoft fyrir fimm árum, og væntingar um hátt í sex milljarða króna árlegan sparnað gengu ekki eftir. Þetta er meðal niðurstaðna í úttekt Ríkisendurskoðunar....

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!