EPISODE · Jun 5, 2023
Leið næstum yfir Freysa - „Ótrúlega stoltur að hafa staðið með sjálfum mér"
from Fotbolti.net
Lyngby hélt sér uppi í Superliga á laugardaginn með því að fá stig gegn Horsens í lokaumferðinni. Stigið dugði þar sem Álaborg tapaði gegn Silkeborg. Niðurstaðan varð sú að Lyngby og Horsens enduðu með jafnmörg stig en Lyngby var með betri markatölu. Álaborg var svo með stigi minna. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og þeir Alfreð Finnbogason, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon eru leikmenn liðsins. Lyngby var í neðsta sæti deildarinnar frá því í ágúst og þar til Silkeborg komst yfir gegn Álaborg á laugardag. Á tímapunkti var Lyngby sextán stigum frá öruggu sæti en þjálfaranum og liðinu tókst kraftaverkið og Lyngby verður áfram í deild þeirra bestu í Danmörku. Sæbjörn Steinke ræddi við Frey í dag og fór yfir lokaflautið, afrekið, Silkeborg, trúna, íslensku leikmennina, þjálfarastarfið og álagið sem því fylgir og ýmislegt fleira.
Embed this episode
NOW PLAYING
Leið næstum yfir Freysa - „Ótrúlega stoltur að hafa staðið með sjálfum mér"
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.