Lesóð Z-kynslóð, Haugalygi og „ástandið“ í nýju ljósi episode artwork

EPISODE · Feb 17, 2024 · 52 MIN

Lesóð Z-kynslóð, Haugalygi og „ástandið“ í nýju ljósi

from Bara bækur

„Lestur er lostafullur,“ heyrist sagt á Bretlandi um þessar mundir. „Reading is so sexy“ heitir nýlegt greinarkorn á vef breska blaðsins The Guardian þar sem sett eru fram gögn um það að Z-kynslóðin er að lesa. Z-kynslóðin, fólk fætt á árunum 1997 til 2012, hefur í auknu mæli snúið sér að bókum og það á pappír. Bóksala í Bretlandi hefur sannarlega blómstrað undanfarin misseri og ungir lesendur eru að hörfa frá frá mettaðri og hávaðasamri veröld samfélagsmiðla, frá hinu villta stafræna vestri. Á síðasta ári seldust tæplega 700 milljón bækur, bara í Bretlandi og þessi unga kynslóð á um það bil 80% prósent af heildarsölu bóka frá nóvember 2021 til 2022. Við ræðum um bókaæði unga fólksins við Kolbrúnu Maríu Másdóttur, nema í málvísindum við Háskóla Íslands og bókaorm. Minnið er dyntótt og lævíst, það er sennilega alveg rétt. Það er opnunarlínan í fyrstu bók Sigtryggs Baldurssonar, tónlistarmanns og trommuleikara. Hann var að senda frá sér bókina Haugalygi sem er samantekt af sögum úr öllum áttum, af honum sjálfum og ættingjum. Þær eru ekki haugalygi, þær eru hvorki alsannar né upplognar. Við röltum til Sigtryggs Baldurssonar og spyrjum hann aðeins út í sögur og sagnalist almennt og hvað maður man, minnið það er víst dyntótt og lævíst. Við ætlum líka að halda áfram að kynna okkur bækur um stríð. Síðustu tvo þætti höfum við flett í nýjum íslenskum og erlendum bókum sem glíma við stríðssagnfræði og reyndar líka um yfirstandandi stríð því stríðin virðast vera ævarandi ástand því miður. Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi heitir ný bók eftir Báru Baldursdóttur sagnfræðing þar sem hún dregur upp mynd af ástandinu svokallaða hér á hernámsárunum. Bára hefur lengi rannsakað þetta tímabil í sögu þjóðarinnar og í þessari nýju bók rýnir hún í nýopnuð skjöl, heimildir um ástandið sem lágu í læstum skúffum í hálfa öld. Viðmælendur: Kolbrún María Másdóttir, Sigtryggur Baldursson og Bára Baldursdóttir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Lesóð Z-kynslóð, Haugalygi og „ástandið“ í nýju ljósi

0:00 52:36

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 52 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on February 17, 2024.

What is this episode about?

„Lestur er lostafullur,“ heyrist sagt á Bretlandi um þessar mundir. „Reading is so sexy“ heitir nýlegt greinarkorn á vef breska blaðsins The Guardian þar sem sett eru fram gögn um það að Z-kynslóðin er að lesa. Z-kynslóðin, fólk fætt á árunum 1997...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!