EPISODE · Apr 18, 2026 · 38 MIN
„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið
from Gímaldið · host Gímaldið
„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum.Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram:Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem skrifaði þessi orð taldi að þeim yrði slepptÍ tölvupósti var sagt að arkitektinn sé „að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif“ á sigBorghildi hafði verið sagt upp störfum hjá borginni þegar umsögnin var skrifuð og starf hennar lagt niðurUnnið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvótaHröð uppbygging samhliða eftirgjöf í byggingarreglugerð hefur dregið úr gæðum í nýbyggingumMilliliðir milli framkvæmdaaðila og skipulagsyfirvalda hafa bæst við á undanförnum áratugGera þarf kröfu um að hönnun bygginga liggi fyrir fyrr í ferlinuHagar hefðu getað sýnt meiri metnað í uppbyggingu á byggingunni sem nefnd hefur verið Græna gímaldiðInnanhúss hjá borginni var Græna gímaldið í upphafi kynnt sem „höfuðstöðvar stórfyrirtækis“Þátturinn er öllum opinn en Gímaldið – sem að hluta til dregur nafn sitt af Græna gímaldinu – er fjölmiðill í áskrift. Hlustaðu á þáttinn ...og ef þú vilt meira svona efni þá hvetjum við þig til að gerast áskrifandi eða leggja til frjálst framlag á www.gimaldid.is
Embed this episode
NOW PLAYING
„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.