Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni episode artwork

EPISODE · Jan 21, 2025 · 54 MIN

Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni

from Víðsjá

,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar um ævistarf Sigríðar, Art can Heal. Á fimmtudag verður blásið til málþings um listmeðferð til heiðurs Sigríði, á vegum Listasafns Íslands og Myndlistarmiðstöðvar. Þau Ágústa og Egill koma við í hljóðstofu og segja okkur frá eiginleikum listmeðferðar og starfi Sigríðar. Við fáum líka pistil frá Gauta Kristmannssyni, sem að þessu sinni fjallar um ljóðasafn norska stórskáldsins Olav Hauge, Undir eplatrénu. Ljóðasafnið er að mestu fengið úr síðustu þremur bókum Hauges en Gyrðir Elíasson íslenskaði og ritaði formála. Við höldum líka áfram umfjöllun um kvikmyndaleikstjórann David Lynch. Lynch málaði heiminn í sterkum, dulúðugum og súrrealískum litum, sem virðast á stundum koma úr annari vídd, og bjó til andrúmsloft sem hefur einfaldlega verið kallað lynchían. Við ætlum að velta þessari lynchian tilfinningu fyrir okkur í þætti dagsins með Rúnari Rúnarssyni kvikmyndaleikstjóra, Ásgrími Sverrissyni kvikmyndagerðamanni, Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastýru bíó paradís og Evu Rún Snorradóttur rithöfundi og sviðslistakonu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 21, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni

0:00 54:13

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 54 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on January 21, 2025.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!