EPISODE · Jan 2, 2026 · 20 MIN
Loðnuleit og áróðursmaskína Rússa
from Spegillinn
Loðnurannsóknir hefjast á mánudaginn þegar rannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur af stað í árlegan könnunarleiðangur Hafrannsóknastofnunar. Ferðinni er heitið norður og austur fyrir land til að kanna hversu langt loðnan er gengin inn í landhelgina. Vika er áætluð í þennan leiðangur og með vitneskju úr honum verður hægt að leggja drög að heildarmælingu á loðnunni. Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafró, gerir ráð fyrir að það geti orðið á bilinu fimmtánda til tuttugasta janúar og að fimm skip taki þátt í þeim leiðangri. Rússnesk stjórnvöld reka ekki bara stríð á jörðu. Þau hafa undanfarin ár farið mikinn í áróðursstríði þar sem farið er frjálslega með söguleg sannindi. Þau réttlættu innrás í Úkraínu með því að þar réðu nýnasistar og það þyrfti að verja íbúa þar fyrir yfirgangi nasista og þjóðarmorði. En rússnesk stjórnvöld hafa horn í síðu fleiri ríkja og viðhafa álíka undirróður gegn þeim.
Embed this episode
NOW PLAYING
Loðnuleit og áróðursmaskína Rússa
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.