Lögregla fylgist með hatursorðræðu og minni losun í sjávarútvegi episode artwork

EPISODE · Sep 13, 2023 · 30 MIN

Lögregla fylgist með hatursorðræðu og minni losun í sjávarútvegi

from Spegillinn

Samtök atvinnulífsins hefðu viljað verja óvæntum tekjuauka ríkissjóðs til að greiða niður skuldir fremur en að auka útgjöld. Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA telur að í fjárlagafrumvarpinu sé ekki nógu mikil áhersla lögð á aðgerðir til að draga úr verðbólgu og lækka vexti. Sjávarútvegurinn hefur dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að helming síðasta aldarfjórðung. Daði Már Kristófersson hagfræðiprófessor telur að fiskveiðistjórnunarkerfið hafi skipt þar sköpum; Íslendingar séu leiðandi við samdrátt í losun við matvælaframleiðslu. Réttað verður yfir Birni Höcke, svæðisleiðtoga þjóðernisflokksins AfD í Þýskalandi. Hann er ákærður fyrir að nota slagorðið ?allt fyrir Þýskaland? í framboðsræðu sinni í maí 2021. Tveir fangar eru á flótta í Frakklandi. Þeir voru í vettvangsferð úti í skógi, sögðust þurfa að kasta af sér vatni og létu sig hverfa. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína í kvöld eins og venja er í byrjun þings. Stefnt er að því að ný þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir verði tilbúin í árslok 2026 eða byrjun árs 2027, segir Gunnar Einarsson formaður framkvæmdarnefndar. Það er ári síðar en áður var ráðgert. Mikið sjónarspil varð á himninum yfir Íslandi í gærkvöld þegar vígahnöttur sveif í gegnum norðurljós og sprakk. ------------- Full ástæða er til að taka hatursorðræðu gegn hinsegin fólki alvarlega, að mati Maríu Rúnar Bjarnadóttur lögfræðings hjá Ríkislögreglustjóra. Embættinu hafa borist fleiri tilkynningar um hatursorðræðu og hatursglæpi í ár en í fyrra. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Kim Jong Un, einvaldur í Norður-Kóreu hittust í dag á tveggja klukkustunda fundi í geimferðastöð í Síberíu. Ekkert hefur verið látið uppi um viðræður þeirra. Ásgeir Tómasson tók saman. Óheft lausaganga fjár fer ekki saman við endurheimt landgæða, að mati Ólafs G. Arnalds prófessors við Landbúnaðarháskólann. Ný rannsókn sýnir að vistkerfi víða um land eru illa farin upp til fjalla. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

NOW PLAYING

Lögregla fylgist með hatursorðræðu og minni losun í sjávarútvegi

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 30 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on September 13, 2023.

What is this episode about?

Samtök atvinnulífsins hefðu viljað verja óvæntum tekjuauka ríkissjóðs til að greiða niður skuldir fremur en að auka útgjöld. Anna Hrefna Ingimundardóttir aðstoðarframkvæmdastjóri SA telur að í fjárlagafrumvarpinu sé ekki nógu mikil áhersla lögð á...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!