EPISODE · Mar 23, 2026 · 54 MIN
Loji Höskulds í Köben, Vörumerkið Laxness, Haukur Þorgeirs pistill #1
from Víðsjá
Myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson opnaði sýninguna Nágranna á dögunum í Kaupmannahöfn. Útsaumsverk Loga eru löngu orðin áhugafólki um myndlist hér á landi kunn en hann hefur á síðustu árum einnig haslað sér völl í Danmörku. Listamaðurinn segir aukna viðveru sína í konungsríkinu óneitanlega hafa haft áhrif á myndmál sitt en hann tvinnar hönnunarvörur saman við hversdagslega hluti neyslumenningarinnar í verkum sýningarinnar. Grétar Þór Sigurðsson hittir Loga í Köben í þætti dagsins. Og í dag tekur til máls nýr pistlahöfundur, Haukur Þorgeirsson, en hann er málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun. Haukur mun á næstu vikum ferðast með okkur um forna ljóðlist og fara vítt og breitt um hugarheim miðalda. Í sínum fyrsta pistli segir Haukur okkur frá Ragnarsdrápu, elsta kvæðið sem varðveitt er í íslenskum handritum. Og við ræðum við Gunnlaug Bjarnason um hönnun á bókverkum HKL og vörumerkið Laxness.
Embed this episode
NOW PLAYING
Loji Höskulds í Köben, Vörumerkið Laxness, Haukur Þorgeirs pistill #1
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.