Lokakaflinn hafin á Sundhnúksgígaröðinni og hernaðarandstæðingur um óróann í Evrópu episode artwork

EPISODE · Mar 7, 2025 · 20 MIN

Lokakaflinn hafin á Sundhnúksgígaröðinni og hernaðarandstæðingur um óróann í Evrópu

from Spegillinn

Lokakaflinn á Sundhnúksgígaröðinni er líklega hafinn, segir Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur og fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands. Sennilega er innistæða fyrir einu eldgosi í viðbót, hvenær það verður er erfiðara að spá fyrir um. Og hvað gerist svo næst og hvenær? Í jarðfræðinni eru hundrað ár eins og eitt augnblik, segir Benedikt. Það er óhætt að fullyrða að allir - eða í það minnsta nokkurn veginn allir - sem láta sig heiminn og meðbræður sína og systur einhverju varða yfirhöfuð óski þess að friður komist á í Úkraínu. En fólk greinir á um, hvernig best sé að koma því í kring. Línan hjá stjórnvöldum hér og í stærstum hluta Evrópu og Vesturlanda - þar á meðal þar til fyrir skemmstu, í Bandaríkjunum líka - hefur verið sú að eina ráðið sé að vopna Úkraínumenn, sjá þeim fyrir æ meiri og fullkomnari vopnum til að beita í stríðinu við innrásarher Rússa, uns þeir ná að reka hann af höndum sér og knýja stjórnvöld í Moskvu til samninga. Þetta gengur hins vegar ansi illa. Menn halda áfram að murka lífið hver úr öðrum á vígstöðvunum og Rússar halda líka áfram mannskæðum árásum á borgaraleg skotmörk, innviði og jafnvel íbúðahverfi, en hvorugum stríðsaðila hefur miðað nokkuð sem heitið getur um langa hríð. Og hvorugur vill gefa nokkuð eftir. Og hvað er þá til ráða? Um það eru sem fyrr segir skiptar skoðanir og engin patentlausn til - en friðarsinnar eru þó sannfærðir um að meira af því sama dugi skammt. Spegillinn hitti Stefán Pálsson sagnfræðing og hernaðarandstæðing að máli.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 7, 2025

Embed this episode

Ready to play

Lokakaflinn hafin á Sundhnúksgígaröðinni og hernaðarandstæðingur um óróann í Evrópu

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on March 7, 2025.

Can I download this Spegillinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!