EPISODE · May 11, 2026 · 29 MIN
Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum
from Gímaldið · host Gímaldið
Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru þeir tveir málaflokkar sem flestir íbúar leggja áherslu á vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, hvort sem litið er til Reykjavíkur, nágrannasveitarfélaga borgarinnar, eða íbúa á landsbyggðinni. Þetta sýna niðurstöður Þjóðmálakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði, lét gera könnunina og hefur unnið úr niðurstöðunum, en honum hefur fundist vanta umræðu í aðdraganda kosninga um hvað kjósendum sjálfum finnst mikilvæg málefni.Meðal þess sem spurt var um er ánægja með þjónustu sveitarfélaganna, afstöðu til Borgarlínu og afstöðu til þéttingar byggðar í Reykjavík. Erla Hlynsdóttir ræðir við Rúnar um niðurstöðurnar.Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið.
Embed this episode
NOW PLAYING
Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.