Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu episode artwork

EPISODE · Feb 20, 2026 · 27 MIN

Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu

from Álhatturinn

Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði.Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samstarfi við önnur stórveldi og jafnvel einkafyrirtæki, hafi byggt upp heilan skuggaveruleika utan almennrar vitundar? Er til “Secret Space Program” sem starfar utan NASA, utan hefðbundinna hernaðarstofnana og utan fjárlaga sem nokkur kjörinn fulltrúi fær að sjá? Í kenningunum er talað um börn sem séu valin ung að aldri, þjálfuð í háþróuðum og leynilegum hernaðarverkefnum, send út fyrir jörðina og svo “aldursendurstillt” og skilað aftur inn í samfélagið án minninga. Það er talað um samninga við framandi lífverur, herstöðvar neðanjarðar og utanjarðar, og að tæknin sem við sjáum opinberlega sé aðeins brotabrot af þeirri tækni sem raunverulega sé til.Þeir félagar fara yfir helstu frásagnir og nöfn sem hafa haldið þessari hugmynd á lofti, greina hvað á að vera skjalfest og hvað byggir eingöngu á einhverskonar vitnisburði eða frásögn einhverra mis traustvekjandi eða trúverðugra aðilla. Hvað er raunveruleg hernaðarleynd, hvað er vísindaskáldskapur í dulargervi, og hvenær verður samsæri svo stórt að það hrynur undan eigin þunga?Eru sögurnar um Mars-bækistöðvar og tungl herstöðvar bara fantasía sem lifir góðu lífi á netinu? Eða gæti verið að geimkapphlaupið hafi aldrei hætt, það hafi einfaldlega farið undir yfirborðið  og verið sópað undir teppið fjarri vökulum og forvitnum augum almennings? Hvernig tengist þetta allt saman nasistum, the Dracos og mögulega vampírum, klónum eða varúlfum? Og hvað í veröldinni eru Supersoldiers eða Lightwarriors? Þetta og margt fleira í þessum þætti af Álhattinum þar sem þeir velta fyrir sér þeirri spurningu hvort mannkynið hafi komið upp bækistöðvum eða herstöðvum á fjarlægum plánetum(amk Mars og Tunglinu) án vitundar almennings. Support the showUM ÁLHATTINNÍ þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 20, 2026

Embed this episode

Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði. Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samstarfi við önnur stórveldi og jafnvel einkafyrirtæki, hafi byggt upp heilan skuggaveruleika utan al...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

NOW PLAYING

Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu

0:00 27:37

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Álhatturinn?

This episode is 27 minutes long.

When was this Álhatturinn episode published?

This episode was published on February 20, 2026.

Can I download this Álhatturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!