Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur episode artwork

EPISODE · Dec 13, 2025 · 25 MIN

Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur

from Álhatturinn

Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem  lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna.  Hann  tók að endingu alfarið yfir sviðið og varð að stærstu poppstjörnu allra tíma. Sannkallaður og óumdeildur konungur poppsins. Thriller, Bad og Dangerous seldust í bílförmum og ruku út allstaðar eins og heitar lummur.  Tónlistarmyndböndin voru stórfengleg og íburðamikil líktog óskarsverðlaunamyndir  og einstakur dansstíllinn mótaði heila kynslóð. Líklega besti söngvari og dansari síons tíma, ef ekki allra tíma Á sama tíma fjarlægðist hann sífellt  hið hefðbundna líf, breyttist gífurlega í útliti og  dvaldist sífellt meira í lokuðum heimi aðdáenda, öryggisvarða og ráðgjafa.Michael Jackson varð að einhverskonar flókinni blöndu af barnastjörnu, ofurviðkvæmum listamanni og sérlunduðum og mislyndum furðufugl,i sem virtist ekki finna sinn stað í heimi fullorðinna. Á móti koma grófar og alvarlegar ásakanirnar og þeir sem setja Jackson í hlutverk geranda. Chandler fjölskyldan sem lýsir kynferðislegri misnotkun, fer fyrst allra til lögfræðings og ræðir um bótaupphæðir áður en lögregla eða barnavernd koma að borðinu. Þetta og svo margt margt fleira bæði óhugnalegt og áhugavert í þessum þætti af Álhattinum, þar sem góð vinirnir Guðjón Heiðar og Haukur Ísbjörn aka fyrir þá fullyrðingu að Michael Jackson hafi verið saklaus af ásökunum um barnaníð. Þeir fara vandlega yfir feril hans, persónuleika, Neverland og ásakanirnar sem komu fram á mismunandi tímum, skoða sögurnar frá sjónarhorni meintra fórnarlamba, frá sjónarhorni varnaraðila, lögreglu, fjölmiðla og plötu iðnaðarins. Þeir spyrja líkt og alltaf áður hverjir séu að gera hvað, hvernig og hversvegna, og velta vandlega fyrir sér hvað það sé sem styður við sakleysi og hvað styður sekt, án þess að fella endanlegan dóm. Markmiðið Álhattsins er ekki að hreinsa nafn eða hengja mann, heldur að rýna í öll helstu gögn málsins og draga þau fram í dagsljósi því Álhatturinn er alltaf leitandi og alltaf spyrjandi en Álhatturinn fellir aldrei endanlegan dóm. HLEKKIR Á ÍTAREFNI:https://youtu.be/rCy_wPTW_Ww?si=F8IQ51A6K8udBgULhttps://youtu.be/yBw-t37co2Q?si=EpcoKze8ER4GSMpAhttps://youtu.be/VC7OT90_nG0?si=N9UvtdwfjDuWFoCxhttps://youtu.be/SRAhsLnhenE?si=rTH1oahyveGJK_mPhttps://youtu.be/4QqoFYwFq9s?si=5N5cX_9MCVHnZGemhttps://youtu.be/-_452akeOkU?si=M1kwc8LFuGjgIDc4https://youtu.be/fXf3uXDTRsk?si=x-M4yLzXXeyBBJfSSupport the showUM ÁLHATTINNÍ þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna. Hann tók að endingu alfarið yfir sviðið og varð að stærstu poppstjörnu allra tí...

NOW PLAYING

Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur

0:00 25:18

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Álhatturinn?

This episode is 25 minutes long.

When was this Álhatturinn episode published?

This episode was published on December 13, 2025.

What is this episode about?

Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og...

Can I download this Álhatturinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!