Natasha S. í Rússlandi, Madame de Lafayette og Hefnd Diddu Morthens episode artwork

EPISODE · May 17, 2025 · 53 MIN

Natasha S. í Rússlandi, Madame de Lafayette og Hefnd Diddu Morthens

from Bara bækur

Guðrún Kristinsdóttir sem hefur sérhæft sig í frönskum bókmenntum og leikhúsi skrifaði grein í Ritið - tímarit Hugvísindastofnunar þar sem smásögur eru í brennidepli. Greinin fjallar um sagnagerð franska rithöfundarins Madame de lafayette sem var uppi á 17. öld og hafði mikil áhrif með sínum sögulegu smásögum og nóvellum. Lafayette er enn áhrifamikil, kennd í skólum og rannsökuð bæði innan Frakklands og utan. Ljóðskáldið Natasha S. var að gefa út ljóðabókina Mara kemur í heimsókn sem fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand. Natasha hefur áður ort um heimalandið í ljóðabókinni Máltaka á stríðstímum sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Natasha er stödd í Moskvu en hún segir okkur símleiðis frá nýju ljóðunum. Í lok þáttarins er rætt við Sigríði Pétursdóttur sem var að gefa út bókina Hefnd Diddu Morthens en handritið að henni bar sigur úr bítum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir og þar með er gömul útvarpsrödd orðin ný rödd bókmenntanna en fyrir utan að vera menntuð kvik­mynda­fræðing­ur þá starfaði Sigríður lengi við dag­skrár­gerð hér í Ríkisútvarpinu bæði í út­varpi og sjón­varpi. En rithöfundurinn hefur alltaf blundað í henni, árið 2010 gaf hún út smásagnasafnið Geislaþræðir en Sigríður segir okkur allt um rithöfundadrauminn og nýju bókina í þættinum. Viðmælendur: Natasha S., Guðrún Kristinsdóttir og Sigríður Pétursdóttir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Natasha S. í Rússlandi, Madame de Lafayette og Hefnd Diddu Morthens

0:00 53:23

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 53 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on May 17, 2025.

What is this episode about?

Guðrún Kristinsdóttir sem hefur sérhæft sig í frönskum bókmenntum og leikhúsi skrifaði grein í Ritið - tímarit Hugvísindastofnunar þar sem smásögur eru í brennidepli. Greinin fjallar um sagnagerð franska rithöfundarins Madame de lafayette sem var...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!