EPISODE · Oct 5, 2024 · 51 MIN
National Book Award, Hlaupavargur og Ég er það sem ég sef
from Bara bækur
Hlaupavargur eftir einn stærsta samtímahöfund svía, Kerstin Ekmann, kom út í svíþjóð 2022 og hlaut fyrir tilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, sem nú styttist óðfluga í að verði veitt. Ekman sem er komin á tíræðisaldur kom mörgum á óvart með bókinni, hún hafði ekki gefið út skáldsögu í rúman áratug. Hlaupavargur er athyglisverð saga um samband manns við tímann og umhverfi sitt, annað fólk og sjálfan sig. Við ræðum við Skúla Thoroddsen þýðanda í þættinum og heyrum brot úr bókinni. Ljóðakollektívan Svikaskáld var að gefa út nýtt ljóðverk, Ég er það sem ég sef. Það er fjórða ljóðbók hópsins á sjö árum sem hefur líka gefið út skáldsöguna Olíu 2021. Við förum á fund svið Svikaskáld í Gröndalshúsi í lok þáttar og ræðum um samvinnuljóðagerð, endurnýjun og listina að láta sér leiðast. En við byrjum í Bandaríkjunum og rennum yfir nokkrar áhugaverðar bækur á stuttlista National book awards. Viðmælendur: Skúli Thoroddsen, Svikaskáld #3 og Svikaskáld #4 Lesari: Þorgeir Ólafsson Umsjón: Jóhannes Ólafsson
NOW PLAYING
National Book Award, Hlaupavargur og Ég er það sem ég sef
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.