Ný lög um skák frá Alþingi: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands episode artwork

EPISODE · Jun 26, 2024 · 52 MIN

Ný lög um skák frá Alþingi: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands er viðmælandi Kristjáns Arnar í þessum þætti og ræddu þeir að mestu um eftirfarandi: Alþingi Íslendinga samþykkti ný lög um skák síðastliðinn laugardag eða á síðasta starfsdegi þingsins fyrir sumarfrí. Lögin fela í sér þá breytingu að núverandi lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990 og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990 falla úr gildi frá og með 1. febrúar 2025 þegar nýju heildarlögin um skák taka gildi. Ákvæði til bráðabirgða öðlast þó þegar gildi. Þar kemur fram að störf stórmeistara í skák séu lögð niður frá 31. janúar 2025 og að um réttindi og skyldur starfsmanna [stórmeistara], þ.m.t. biðlaunaréttur, fari samkvæmt lögum um réttindin og skyldur starfsmanna  ríkisins nr. 70/1996. Gert er ráð fyrir að líklegt sé að hópur sem nú fær laun stórmeistara muni uppfylla öll skilyrði til að fá úthlutun úr nýjum afrekssjóði í skák. Til að tryggja meðalhóf er lagt til að þessi hópur, nú sjö manns, njóti forgangs til styrkja úr sjóðnum í fyrstu úthlutun árið 2025 en eftir þann tíma verða umsóknir þeirra metnar á sama grundvelli og annarra úr sjóðnum. Með nýju lögunum er skilgreint að framlög ríkisins til skákmála renni annars vegar til afrekssjóðs í skák og hins vegar til skákhreyfingarinnar í gegnum æðsta aðila hennar, Skáksamband Íslands, meðal annars til fræðslu um skák. Jafnframt er horft til þess möguleika að styrkja efnilegt skákfólk, sem stefnir að alþjóðlegum árangri, en hingað til hafi eingöngu þeir sem hlotið hafa nafnbótina stórmeistari uppfyllt skilyrði til að fá greiðslur úr ríkissjóði. Styrkjum verður að jafnaði úthlutað einu sinni á ári og verða veittir í þrjá til tólf mánuði í senn og þá til skilgreindra verkefna sem taki mið af væntum árangri umsækjanda það árið. Til að bæta stöðu og auka möguleika kvenna í skák er heimilt að setja mismunandi skilyrði styrkveitinga fyrir kynin.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 26, 2024

Embed this episode

Ready to play

Ný lög um skák frá Alþingi: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands

0:00 52:45

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 52 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on June 26, 2024.

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!