EPISODE · Mar 8, 2025 · 53 MIN
Nýja Ísland í nýjum bókum
from Bara bækur
Á nokkuð löngu tímabili fyrir 100 til 150 árum fóru þúsundir Íslendinga vestur um haf til Ameríku í leit að betra lífi. Sögur af þessu fólki hafa ratað í bókmenntir og það er öruggt að fullyrða að áhugi á þessu augnabliki Íslandssögunnar hafi aldrei minnkað, þvert á móti, og það á líka við um afkomendur íslendinganna í ameríku. Nýja Ísland er undir smásjánni í þættinum í dag. Þrjár nýjar bækur komu út síðasta haust um þetta efni. Viðkomustaðir eftir Ásdísi Ingólfsdóttur, Aldrei aftur vinnukona eftir Sveinbjörgu Sveinbjörnsdóttur og Sextíu kíló af sunnudögum eftir Hallgrím Helgason. Viðmælendur: Ásdís Ingólfsdóttir, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, Hallgrímur Helgason Umsjón: Jóhannes Ólafsson
NOW PLAYING
Nýja Ísland í nýjum bókum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.