EPISODE · Apr 28, 2021 · 39 MIN
Nýsköpun, vísindin og við - Landsbjörg og lausnamótið með Guðbrandi Erni Arnarsyni
from Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við · host Sverrir Geirdal
Dagana 4. til 7. maí 2021 stendur Auðna Tæknitorg fyrir lausnamóti í samstarfi við Landsbjörgu og fleiri aðila. Hugmyndin að baki lausnamótinu er að stefna saman hópi fólks með mismunandi menntun, bakgrunn og reynslu til að hanna og setja fram lausnir á fyrirfram skilgreindum áskorunum. Áskoranirnar koma frá björgunarsveitarfólkinu sjálfu og var safnað saman í aðdraganda lausnamótsins. Í þættinum förum við yfir fjölbreytt hlutverk björgunarsveita á Íslandi og þær áskoranir sem þær standa frammi fyrir á hverjum degi. Við ræðum hvernig við sem samfélag getum hjálpað björgunarsveitunum. Hvernig getum við orðið að liði við að bregðast við þessum áskorunum og komið með lausnir? Lausnir sem síðar gætu orðið að búnaði eða vöru sem gæti gagnast björgunarsveitum um allan heim í störfum sínum. Getum við t.d. nýtt okkur reynslu Evrópsku Geimvísindastofnunarinnar (ESA) við gerð hlífðarfatnaðar eða næringar? Til að þetta megi takast þurfum við fjölbreyttan hóp þátttakenda, allt frá listamönnum, næringafræðingum og heilbrigðisstarfsfólki til tölvunarfræðinga og verkfræðinga og allt þar á milli. Allar frekari upplýsingar um samstarfsaðila, dagskrá og fyrirkomulag er að finna á audna.is Skráning er hér: https://ice-sar.missions.dev/en/event/www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is
Embed this episode
What this episode covers
Dagana 4. til 7. maí 2021 stendur Auðna Tæknitorg fyrir lausnamóti í samstarfi við Landsbjörgu og fleiri aðila. Hugmyndin að baki lausnamótinu er að stefna saman hópi fólks með mismunandi menntun, bakgrunn og reynslu til að hanna og setja fram lausnir á fyrirfram skilgreindum áskorunum. Áskoranirnar koma frá björgunarsveitarfólkinu sjálfu og var safnað saman í aðdraganda lausnamótsins. Í þættinum förum við yfir fjölbreytt...
Ready to play
Nýsköpun, vísindin og við - Landsbjörg og lausnamótið með Guðbrandi Erni Arnarsyni
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.