Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við podcast artwork

PODCAST · business

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við

Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Sep 30, 2026 · Source feed

  1. 40

    Greenfish - Næsti einhyrningur landsins - Sveinn Sigurður framkvæmdastjóri segir frá!

    Við hjá Auðvarpinu kynnum næsta einhyrning Íslands; Greenfish!Sjávarútvegsfyrirtæki byggt á gervigreind. Veðurstofa fyrir fiskistofna.  Sveinn Sigurður Jóhannesson, varamarkmaður Stjörnunnar og fyrrum varamarkmaður Vals í fótbolta, er í raun fyrst og fremst frumkvöðull. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Greenfish sem á undrastuttum tíma hefur náð forystu á sínu sviði í heiminum.Greenfish spáir fyrir um hvar fiskinn er er að finna í sjónum áður en skipið leggur úr höfn með því að nota gervigreind og mikið magn gagna, líkön og töfra til að reikna út líkur á hvar og hvernig fiskurinn hagar sér. Allt gert með ofurtölvum.Hafa notið liðsinnis IHPC og Kveikja.ai – Einkaleyfi í farvegi!Hlustiðiwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  2. 39

    Verðlaunaverkefnið: Vefjastoðefni úr Brúnþara - Svava og Óttar

    Handhafi Vísinda og Nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands 2026 er verkefnið Að þróa vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja.Það er Svava Kristinsdóttir doktorsnemi sem fer fyrir verkefninu. Hún ásamt Óttari Rolfssyni koma í þátt 37 og útskýra verkefnið fyrir okkur.  Hvernig það kom til og hvaða þýðingu svona viðurkenning hefur fyrir framhaldið.Verðmætasköpun á grunni rannsóknanna er handan við hornið. Einkaleyfi í farvegi og framtíðin er björt.HlustiðiÞátturinn er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða og IHPCwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  3. 38

    Nýsköpunarvikan með Eddu Konráðs

    Innovation week verður 28-29 apríl – Edda Konráðs segir okkur allt!Tölum um Nýsköpunarvikuna og lærum smá um söguna – allt um vikuna er hér: www.innovationweek.isViðburðir sem talað er um í þættinum:STEMming 2026 8. mars á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna: https://fb.me/e/9tqySvut1Join us as we celebrate International Women’s Day at our 3rd annual STEMming event! We are always proud to host this celebratory gathering designed to unite women, non-binary individuals, and allies dedicated to championing diversity in STEM and innovation. og AI & Society ráðstefna í HR 13. mars: https://www.ru.is/en/events/ai-and-societyAI & Society 2026 explores how artificial intelligence is reshaping the boundaries of decision-making, from individuals and organisations to nations themselves.  Og svo fer AI Running Club aftur af stað 9. mars: https://www.linkedin.com/events/airunningclubreykjavik7433123347628036096/Tækifæri til að hittast og hlaupa eða labba og networka og ræða gervigreind í afslöppuðu umhverfi.Skoðið næstu viðburði hjá Iceland High Performance Computers – www.IHPC.iswww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  4. 37

    Nýsköpun fyrir Norðan með Svövu Björk Ólafsdóttur

    Í þætti 35 fáum við Svövu Björk Ólafsdóttur Nýsköpunarstjóra Háskólans á Akureyri í heimsókn. Svava er samt svo miklu meira en starfsmaður HA – hún hefur snertifleti við eiginlega allt nýsköpunarstarf fyrir norðan.Við fáum að kynnast Nýsköpunar-Svövu, hvað er að gerast fyrir norðan og hvernig nýsköpun er sinnt í Háskólanum á Akureyri.Við lærum um skapa.is, Drift ea. Norðanátt, nýjan fjárfestingasjóð - Landvætti og hvernig Svava er að kenna börnum að nýskapa.Mjög skemmtilegt og fróðlegt.Ítarefni og hlekkir:https://www.unak.is/https://www.Skapa.ishttps://www.driftea.is/Workshop hjá IHCP – sjá hér: https://www.ihpc.is/events/24th-icelandic-hpc-community-workshopOg síðast en ekki síst;  Masterclass Auðnu fyrir norðan: https://audna.is/masterclass-a-akureyriwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  5. 36

    Dr. Professor Morris Riedel one of the key players in HPC and AI in Iceland

    Supercomputers, money and Morris RiedelThe 34th episode Auðvarpið 2.0 is of the more expensive type, recorded for the second time and even better than the first.Dr. Professor Morris Riedel is the guest of the episode. One of the most important participants and actually the one who makes things happen for Icelandic projects in the field of artificial intelligence and supercomputers. He is behind most of the projects that have received substantial funding from the European Union in the field.We review the projects and their status as well as getting to know the man behind the genius a little.Ofurtölvur, peningar og Morris Riedel34 þáttur Auðvarpsins 2.0 er af dýrari gerðinni,  tekin upp í annað skipti og ennþá betri en í það fyrsta.Dr. Professor Morris Riedel er gestur þáttarins.  Einn almikilvægast þátttakandi og í raun gerandi í góðum árangri Íslands og Íslenskra verkefna á sviði gervigreindar og ofurtölva. Hann er á bakvið flest þau verkefni sem hljóta há styrki frá Evrópusambandinu á sviðinu.Við förum yfir verkefnin og stöðuna ásamt að kynnast manninum á bakvið snillinginn aðeins.Ítarefni:The Possibilities for Women in AI Skráning og frekari upplýsingar hér:  https://jafnrettisdagar.is/dagskra/?fbclid=IwVERDUAPTU0ZleHRuA2FlbQIxMABzcnRjBmFwcF9pZAo2NjI4NTY4Mzc5AAEeEy_tBpW0IE7EKhf1adjKmfYmbv1IuzKYVQtkEUeEg80jPeafaqRL1CICuPM_aem_t79QLxqFp_5ygrHHocXqlA     (Velja Háskólann í Reykjavík)https://www.treble.tech/www.greenfish.isHlustiðiwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  6. 35

    Disney er dautt - Skapandi greinar og AI - Sigurður Á. Árnason

    Disney er dautt og samfélagsmiðlar sömuleiðis 33 þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.2)Sigurður Ásgeir Árnason eða Siggi, framkvæmdastjóri Overtune mætir í settið hjá Sverri Geirdal, nú ráðgjafa hjá Hinos ehf. og ræðir tónlistargeirann og gervigreind – Skapandi greinar með áherslu á tónlist.Hvaða áhrif hefur gervigreind á skapandi greinar? Í hvað er hún notuð? Þurfum við að vera hrædd? Hvað gerir listaverk að listaverki? Getur gervigreindin komið í staðinn fyrir fólk?Er meðal lag nógu gott? Hreyfir það við okkur að búa til 1000 lög á sekúndu?Mikil gerjun og ákaflega spennandi staða uppi!  Hvernig verður hagkerfi skaparans í framtíðinni?Hlustið!Tenglar úr þættinum:Nýsköpunarnám á vegum Landsspítala – upplýsingar hér: Námsbraut í nýsköpun - Almennt um námið | LandspítaliÞáttur með Hafsteini Einarssyni um AI og listina er númer 17;  hlustið hér: https://open.spotify.com/episode/62BytmvDn8TWLYUwUohpDm?si=dc3d0240a1714680Aukaefni um ai og tónlist – þáttur númer 24 – viðtal við Þórhall Magnússon um tónlist og gervigreind:  https://open.spotify.com/episode/05i7kqWoMxz87chWxvA3hT?si=9967ec468f4f4f7cwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  7. 34

    EDIH - Svartur Nóvember og Netöryggi - Teddi hjá Defend Iceland!

    Eyvör – stærsta framfaraskref netöryggis og eru yfirvöld að bregða fæti fyrir nýsköpun með höfnun 60% umsókna um endurgreiðslu þróunarkostnaðar?32. þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.1 – vonum að bottinn nái að læra stafsetningu fyrir næsta þátt).Theodór Ragnar Gíslason eða Teddi mætir í settið hjá Sverri Geirdal,  nú ráðgjafa hjá Hinos ehf., og ræðir allskonar um net og tölvuöryggi.Defend Iceland – hvað er það?  Lýðvirkja?  Og hvað þýðir Villuveiðigátt?Defend Iceland er nýbúið að fá Nýsköpunarstyrk frá Digital Europe og Rannís en var hafnað um endurgreiðslu þróunarkostnaðar vegna þess að þau eru ekki í Nýsköpun… (There is something rotten in the state of Ice…)Ræðum um Eyvöru,  sem Teddi kallar mesta framfaraskref á sviði netöryggis í seinni tíð. Hvernig getur samfélagið nýtt sér styrki sem þar fást?Hvernig eigum við venjulega fólkið að haga okkur við verslun á netinu, sem er aldeilis aktuelt efni núna í Svörtum Nóvember,  þegar 11.11 er nýliðinn og 28.11 (svartur fössari) er handan við hornið.Ræðum um viðburði framundan á vegum stuðningsaðila Auðvarpsins;Kynning á netörygissstyrkjum Eyvarar 17. nóvember í húsakynnum Arion Banka: https://www.rannis.is/frettir/taekifaeri-i-netoryggi-netoryggisstyrkir-eyvarar-og-digital-europeEDIH-IS hefur stofnað hlaupahópinn "AI Running Club Reykjavík." Hópurinn hleypur í hádeginu, þriðja miðvikudag í mánuði. Næsta hlaup er miðvikudaginn 19. nóv kl 11:15 frá HR: https://www.linkedin.com/events/airunningclubreykjavik7394311453232533504/ Gagnvist - ráðstefna um þróun íslenska gagnavistkerfisins - 27. nóvember í Grósku: https://vidburdir.hagstofa.is/events/radstefna2025 🎧www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  8. 33

    Auðna - Upphafið og framhaldið með Einari Mäntylä

    Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt?Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna!  Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna.Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42).Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar,  aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina.  Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn landi og þjóð til heilla.Förum yfir EDIH – hví kom Auðna að því verkefni og hvernig hefur gengið.  Eigum við að sækja í Evrópuverkefni þrátt fyrir portalinn,  ja þegar stórt er spurt?  27 milljón Evrum síðar blasir svarið við.Hlustiði!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  9. 32

    Eyvör: Viltu styrk til að bæta netöryggi?

    Eyvör hleypir netöryggisstyrk af stokkunum!  Allt að 9 milljónir í styrk og 80% verkefnis fjármagnað – umsóknarfrestur til 1. Október 2024.Daði Gunnarsson sérfræðingur hjá Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu og verkefnastjóri Eyvarar og Eyjólfur Eyfells sérfræðingur hjá Rannís og umsjónarmaður Netöryggisstyrkja komu í heimsókn til að ræða málin.Förum yfir tilhögun styrkjanna og þau skilyrði og áherslur sem þar liggja að baki.Kynnumst Eyvöru sem er NCC (National cooperation Center) í netöryggi á Íslandi og hluti af neti slíkra setra í Evrópu.Ákaflega fróðlegur þáttur um það sem er að gerast í netöryggismálum á Íslandi og hvernig Evrópa hyggst bæta stöðu sína í málaflokknum.Hlustiði!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  10. 31

    Er tífalldur hraði lykilatriði í nýtingu gervigreindar? Ólafur Magnússon @Nova ræðir málin

    Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova sest með okkur og ræðir stöðuna á fjarskiptamarkaði með tilliti til þráðlausra tenginga.Hvað er 5,5G og af hverju eru ekki fundin betri nöfn á þráðlausum stöðlum og hvað eigum við að gera með tífalldan hraða?Verður sett þjónustustig á netið?  Munum við þurfa að borga meira fyrir meiri hraða og minna fyrir lakari gæði?Þurfum við ljósleiðara? Þróunin er að opna á ýmis nýsköpunartækifæri til dæmis þráðlausar beinar útsendingar af viðburðum.  Sjá dæmi hér:  https://www.ericsson.com/en/press-releases/3/2024/ericsson-3-denmark-tv-2-and-sony-kick-off-new-era-of-live-sports-broadcastingHlustiði!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  11. 30

    Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Ketilsson @Heilsutækniklasinn

    Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum!Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum.Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina leiðin framávið.Freyr ræðir um innri nýsköpun, ytri nýsköpun, stefnur og strategíur.  Hvernig kerfið þarf á hjálp að halda til að kynna og innleiða breytingar.Svo förum við að sjálfsögðu yfir Heilsutækniklasann og lausnamótið sem er framundan.Hlustiði!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  12. 29

    Verður Gervigreindin bönnuð? Nýtt regluverk á leiðinni!

    Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn.Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju?Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum yfir regluverkið sem Evrópusambandið er búið að samþykkja,  eftir víðtækt samráð við Evrópuráðið og löndin sem mynda sambandið..Fyrir hverja er regluverkið?  Hvað er verið að tryggja/vernda með því?Hvað verður bannað og hvað má?  Hver ákveður og hver verða viðurlögin?Af hverju eru ekki til reglur in Internetið?  Um samfélagsmiðlana?Hvað höfum við lært?Þetta og allskonar meira í þætti 27!Hlustiði!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  13. 28

    Gervigreind og siðfræði - Páll Rafnar Þorsteinsson

    Sverrir Geirdal heldur áfram að fjalla um gervigreind,  stafræna nýsköpun undir hatti EDIH.  Að þessu sinni tekur hann á móti Dr. Páli Rafnar Þorsteinssyni verkefnastjóra hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða mál málanna, Gervigreind og siðfræði.Er gervigreind mannleg greind?  Ef ekki er henni þá treystandi,  út frá siðfræði, að takast á við verkefni sem kallar á mannlega greind? Er gervigreind annarskonar greind,  sem hefur kosti umfram mannlega greind, t.d. hraða og aðgang að ógrynni upplýsinga og er þá hrein viðbót við mannlega greind? Þurfum við regluverk um gervigreind?  Við þurftum ekkert regluverk um Internetið á sínum tíma.  Eða var það kannski feill,  hefðum við einmitt átt að setja reglur um Internetið.  Hefðum við þá getað afstýrt allskonar óværu sem á okkur herjar núna,  eins og falsfréttum?  Óæskileg áhrif samfélagsmiðla  og svo framvegis.Mjög fróðleg og skemmtileg umræða um eitt stærsta álitamál samtímans – Gervigreindina!Góða skemmtunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  14. 27

    Nýsköpun, vísindin og við - Róbert Bjarnason, EDIH og gervigreindin

    Róbert Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúar.ses fræðir okkur um gervigreind.Umfjöllun þessa þáttar er í anda EDIH,  eða Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar - Hvað er gervigreind?  Forrit með töfradufti?  Hvaðan koma töfrarnir?  En gögnin eru þau góð og hver ákveður og stjórnar?  Mættum með 5 verkefni daglegs lífs sem við sjáum fyrir okkur að gervigreind gæti hjálpað okkur með. Missum okkur svo í restina yfir fréttum vikunnar um að Íslenska verði annað tungumál ChatGPT.  Ótrúlegar fréttir og frábærar!Góða skemmtunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  15. 26

    Nýsköpun, vísindin og við - Þórhallur Magnússon

    Framtíðin mætti í settið til að ræða tónlistarsköpun með gervigreind.Þórhallur Magnússon prófessor í framtíðartónlist við tónlistadeild Sussex háskólans og rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands mætir og ræðir um gervigreind, sköpun og tónlist.24. þáttur Auðvarpsins fjallar um mál málanna í dag.  Hvað er gervigreind? Hvað er tónlist?  Hvernig lýtur næsta hljóðfæri út?  Hvernig nýtist gervigreindin í tónlistarsköpun?Þórhallur er hafsjór fróðleiks um gervigreind, hljóðfæri og sköpun.  Mjög áhrifaríkt starf og rannsóknir sem Þórhallur er í forsvari fyrir.Þórhallur forritaði upphafsstef Auðvarpsins.  Í þættinum leggjum við drög að næsta stefi. Fylgist með!Við minnumst á Daisy Daisy með Hal 9000 í 2001 Space Odyssey – Hér er linkur á þá snilld: https://youtu.be/E7WQ1tdxSqIGóða skemmtunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  16. 25

    Nýsköpun, vísindin og við - Ragnhildur Helgadóttir

    Háskólinn í Reykjavík og nýsköpunin á afmælisdegi Auðnu!Í 23. þætti Auðvarpsins hittum við fyrir rektor Háskólans í Reykjavík, Ragnhildi Helgadóttur.Við ræðum Nýsköpun í háskólastarfi, erindi háskólanna í síbreytilegu samfélagi nútímans.  Hvernig við ýtum undir meiri og skarpari nýsköpun innan úr vísindastarfinu.Hvernig standa háskólarnir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði og hvernig kennum við fólkinu okkar að það sé þroskandi að hnjóta, af því lærum við mest!En við byrjum að sjálfsögðu á hundunum okkar og hversu vel þeir eru uppaldir!Góða skemmtunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  17. 24

    Nýsköpun, vísindin og við - Hrönn Greipsdóttir - Nýsköpunarsjóður

    Nýsköpunarsjóður er brúin yfir og vinin í dauðadalnum!Í 22. þætti Auðvarpsins förum við yfir fjármögnunarumhverfi nýsköpunar á Íslandi, séð frá sjónarhóli Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Sem fagnar 25 ára afmæli sínu á næsta ári!Framkvæmdastjóri sjóðsins, Hrönn Greipsdóttir er gestur þáttarins.Við byrjum samt á allt öðru, við byrjum á hótel Sögu sem við söknum, um leið og við fögnum nýju hlutverki hússins sem hluti af háskólasamfélaginu í Vatnsmýrinni.Hlutverk sjóðsins í umhverfinu er að finna og bregðast við markaðsbrestum,  ekki að vera í samkeppni við aðrar fjármögnunarleiðir.  Það er markaðsbrestur í fjármögnun vísindalegrar nýsköpunar, sérstaklega á sviðum þar sem þekking fjárfesta er af skornum skammti. Í því samhengi ræðum við möguleika á stofnun „Proof of Concept“ sjóðs og hlutverk Nýsköpunarsjóðs í því samhengi.Sjóðurinn er sígrænn sem er áskorun í sveiflukenndu umhverfi en um leið nauðsynlegur valkostur.  Allir hafa aðgang að sjóðnum og geta sótt um og kynnt sínar hugmyndir.  Sjóðurinn hefur komið að um 200 fyrirtækjum á síðustu 25 árum, fær 100 til 150 erindi á ári og fjárfestir í 2 til 3. Endum svo á möguleikum til gistingar á svítunni á Hotel Holti.Skemmtileg stund með Hrönn sem hefur frá mörgu skemmtilegu að segja um sjóðinn í fortíð, nútíð og framtíð.www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  18. 23

    Nýsköpun, vísindin og við - Jón Atli Benediktsson

    Vorum á jaðrinum en erum núna í miðju hringiðunnar!Jón Atli Benediktsson Vísindamaður, Professor og Rektor Háskóla Íslands er gestur 21. þáttar Auðvarpsins.Við förum yfir ferilinn,  upphafið og ástríðuna sem fylgir því að vinna að skemmtilegum verkefnum með skemmtilegu fólki,  bæði innanlands og utan.  Jón Atli fer yfir alþjóðlegt samstarf sem HÍ er aðili að og leiðtogahlutverk okkar litla Háskóla.Mikil tækifæri eru fólgin í frekara samstarfi háskóla á Íslandi, þar sem verkefnið er að ryðja hindrunum úr vegi og skapa tækifæri og umhverfi þar sem fólk og þekking blómstrar.Við förum yfir nýsköpunaráherslur Háskólans og hvernig Auðna getur orðið að liði.  Mikilvægi fræðslu og miðlunar reynslu og þekkingar.Miklar breytingar til góðs hafa átt sér stað í Íslenska þekkingarumhverfinu á síðustu áratugum.  Við Íslendingar eigum erindi og getum stuðlað að þróun lausna sem bæta allra hag.Ekkert viðtal við Jón Atla er viðtal við Jón Atla án Fall og pönksins.  Afskaplega skemmtilegt að heyra hve mikil áhrif tónlist hefur á andann og tilfinningalíf rektorsins.Rúsínan í pylsuendanum er svo frábærlega skemmtileg saga um tilurð frægs viðtals Jóns Atla og Kolbeins Árnasonar við meistara Frank Zappa, sem sannanlega stundaði nýsköpun í tónlistarsköpun sinni. These days með Joy Division: https://open.spotify.com/track/1208J1WMoVXWdyfEgGM8OT?si=59efb0bdaa374eebViðtal Jóns Atla og Kolbeins við meistara Frank Zappa frá 1992: https://soundcloud.com/j-n-atli-benediktsson/sets/frank-zappa-interview-in-1992www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  19. 22

    Nýsköpun, vísindin og við - Miðstöð snjallvæðingar

    Miðstöð snjallvæðingar stofnuð á Íslandi með 300 milljón kr. framlagi frá EU20. þáttur Auðvarpsins fjallar um Miðstöð snjallvæðingar.  Til að ræða Miðstöðina,  þýðingu hennar og hlutverk koma Theodór Gíslason Tæknistjóri og einn stofnenda Syndis og Helga Waage Tæknistjóri og einn stofnenda Mobilitus í þáttinn.Við förum um víðan völl í umræðum um gervigreind, öryggismál,  þýðingu Íslenskunnar fyrir snjallvæðinguna,  menntun á mjög breiðum grunni,  gagnatengingar og allskonar skemmtilegt.Við ræðum fjórar meginstoðir Miðstöðvar snjallvæðingar og hvernig þær geta haft áhrif og skapað tækifæri hér á landi.  Mikilvægi samvinnu við Evrópulönd og hvað Ísland getur boðið meginlandinu,  t.d. í formi aðstöðu til prófana.www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  20. 21

    Er tölvustríð þegar hafið á milli Rússa og heimsins? - Theodór Gíslason & Tölvuöryggi

    Nú eru það stóru málin, tekið upp á sjötta degi innrásar Rússa inn í Úkraínu sem hittir á sjálfan Sprengidaginn.  19. þáttur Auðvarpsins er helgaður tölvuöryggismálum.  Í þáttinn kemur einn helsti öryggissérfræðingur landsins, sem vill sjálfur kalla sig atvinnuhakkara; Theodór Gíslason Tæknistjóra og einn stofnenda Syndis.Við kynnumst Theodor aðeins og fræðumst um ástæður þess að hann varð og er hakkari.  Þar hjálpaði alvarlegt slys við Hagaskólann árið 1994, þar sem hann lenti undir strætó!Við ræðum stöðu Íslands í tölvuöryggismálum og af hverju við flokkumst sem þriðja heimsland á öryggissviðinu.  Hvers ber að varast og af hverju við höfum ekki lent í alvarlegri árás,  þar sem við höfum í raun sloppið ótrúlega vel… hingað til.Hann sér fyrir sér að með stofnun EDIH skapist tækifæri til að breyta menningu okkar m.t.t. tölvuöryggis og að það sé tækifæri til að staðsetja miðstöð hakkara á Íslandi.  Þar sem við getum stofnað og starfrækt miðstöð í tölvuöryggismálum sem væri aðlaðandi fyrir helstu hakkara heimsins.Hann lýsir skoðun sinni á menntakerfinu og hvað þarf að bæta þar.Svo förum við yfir stríðið í Úkraínu og hvers ber að vænta á sviði nethernaðar.www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  21. 20

    Nýsköpun, vísindin og við - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar

    Fersk úr atkvæðagreiðslu, þar sem stofnun nýs nýsköpunarráðuneytis;  Ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar var samþykkt, kemur ráðherrann til okkar í Auðvarpið og ræðir sína sýn á málaflokkinn.Í 18 og jafnframt fyrsta þátt endurreisnarársins 2022 kemur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar til okkar í Auðvarpið og fræðir okkur um hvernig pólitísk nýsköpun fer fram.Hvernig hún vill spila sóknarleik við nýsköpun samfélagsins.  Að ráðuneytið eigi að markast af því að vera stofnað árið 2022, hvernig það sjáist á uppsetningu þess og skipulagi að það sé komið til að hrista upp í hlutunum, brjóta niður múra á milli fagsviða og brjóta niður múra á milli menntunar og nýsköpunar.  Verkefnadrifið ráðuneyti í ætt við skipulag Google og annara þekkingarfyrirtækja. Sveigjanlegt ráðuneyti sem getur tekist á við og nýtt tækifærin okkur öllum til hagsbóta.Hún er hrifin af stafvæðingu og sér hana sem mikið tækifæri í framhaldinu.  Þess vegna eigi fjarskipti og tækni samleið með nýsköpuninni undir ráðuneytinu.Við förum yfir litla fugla og stóra fugla, byr undir báða vængi og hvað hún var að gera í París í enda janúar og hvernig sú ferð gæti haft áhrif á nýsköpunarumhverfið á Íslandi.Hún boðar breytingar á fjármögnunar líkönum háskólanna, þar sem litið verður til nágrannalandanna og nauðsynlegra hvata til að auka gæði menntunar og tengingar hennar við þarfir samfélags framtíðarinnar.Í restina deilir hún með okkur sýn sinni á stöðu Íslands eftir 30 ár.Framtíðin er svo sannanlega björt!Stórfróðlegt og skemmtilegt.www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  22. 19

    Nýsköpun, vísindin og við - Hafsteinn Einarsson - Ai og listin

    Táknmynd 17. Þáttar er búin til af gervigreind.  Þar sem Dr. Hafsteinn viðmælandi þáttarins stjórnar ferðinni og er þá listamaðurinn, eða hvað?  (sjá nánar neðst í textanum)17. og jafnframt síðasti þáttur ársins 2021 er helgaður gervigreind og listinni. Við ræðum tengingu gervigreindar, vitvéla, ofurtölva og listaverka!  Við komumst að því hvort hægt er að búa til listaverk með hjálp tölva með aðferðum gervigreindarinnar.Dr. Hafsteinn Einarsson kemur til okkar og fer yfir rannsóknir sínar og vinnu á sviði listsköpunar með gervigreind.Við kynnumst manninum Hafsteini,  hvernig hann fetaði slóðina að listsköpun og annarri hagnýtingu gervigreindarinnar.  Frá dýratilraunum,  þar sem mýs voru settar í sýndarheim og undir ljóssmásjá.  Hafsteinn rýndi í taugaboð heilans um leið og músin hljóp um á boltahjóli,  allsendis óupplýst hvað var í raun að gerast, þ.e. músin.  Allt til að öðlast þekkingu á heilaboðum músarinnar. Hafsteinn útskýrir fyrir okkur muninn á virðisauka í bankaheimum og í hinum akademíska heimi ásamt að kynna okkur fyrir aðferðum gervigreindar er kemur að listsköpun.Við gerum tilraun til að útbúa táknmynd fyrir Auðvarpið með aðferðum Hafsteins og er niðurstaða þeirrar tilraunar notuð sem táknmynd þessa þáttar!Gleðilegt ár og hafið heila þökk fyrir samfylgdina á árinu 2021Nánar um táknmyndina:  Eftirfarandi skipun var send inn í töfravélina: „A creative logo for a podcast on innovation. The logo features glaciers, aurora borealis and value creation“  Valin mynd var númer 145 í röðinni af hátt í 300 myndum sem búnar voru til,  hverri annarri áhugaverðri…www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  23. 18

    Nýsköpun, vísindin og við - Friðrik Jónsson formaður BHM

    16. þáttur er helgaður, já þið giskuðu rétt, hann er helgaður hugverkarétti.  Í þessum þætti leggjum við áherslu á fólkið, á launþega og spjöllum um samfélag framtíðarinnar sem gæti verið samfélag hugverksins.  Formaður BHM Friðrik Jónsson og formaður Samtaka Iðnaðarins Árni Sigurjónsson skrifuðu saman grein um hugverkaiðnaðinn.  Þar sáu þeir tveir herramenn marga snerti fleti á milli launþega og atvinnurekenda er varðar uppbyggingu og hönnun á samfélagi byggt á hugverkum.Friðrik er viðmælandinn í þessum þætti, þar sem við fjöllum um gildi hugverkarétts og áhrif á líf launamannsins.  Hvaða áskoranir og tækifæri felast í hugverkarétti?  Hvers ber að varast og hvaða viðhorf eru ríkjandi.  Hvernig teymisvinna og samtal er affærasælast til árangurs? Þó að leiðtogar launþega og atvinnurekenda geti á stundum tekist á um ýmis mál þá er líka hægt að ræða saman um það sem sameinar.  Uppbygging hugverkaiðnaðar á Íslandi er sameiginlegt hagsmunamál beggja.Við ræðum um höfundarétt, hversu flókinn hann getur verið.  Hvernig stjórnsýslan þarf að aðlagast nýjum tímum og svara þannig kalli samfélagsins til þverfaglegrar vinnu og samstarfs.  Því aðeins þannig tökumst við á við verkefni nútímans og framtíðarinnar,  með samvinnu!Við minnumst á Terminator, vitvélar, gervigreind, Purrk Pillnik og að þora, treysta og gera!Hlustum og lærum, skiljum og hlægjum!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  24. 17

    Nýsköpun, vísindin og við - Hugverkaréttur með Sigríði Mogensen og Jóni Gunnarssyni

    15. þáttur er helgaður hugverkarétti,  hvernig sá réttur er lykillinn að samkeppnisforskoti og almennt betra lífi hér á landi.  Bæði fyrir fyrirtækin og fólkið okkar.Hugverkastofa stendur fyrir mjög svo áhugaverðri afmælisráðstefnu þann 4. Nóvember 2021,  þar sem haldið verður upp á 30 ára afmæli stofunnar með því að ræða hugverkarétt í tengslum við sjálfbærni – aldeilis þarft og áhugavert efni,  sem við förum aðeins inná í þættinum. Við fáum Sigríði Mogensen sviðsstjóra iðnaðar og samkeppnissviðs Samtaka iðnaðarins og Jón Gunnarsson samskiptastjóra Hugverkastofu til okkar að þessu sinni.Við Íslendingar, með okkar frábæru frumkvöðla eigum erindi inn á alþjóðasviðið. Við getum haft áhrif með rannsóknum og uppgötvunum á þeim sviðum sem Ísland er hvað sterkast í, eins og vistvænni orku, sjávarútvegi, loftslagstengdum verkefnum og fl..  Til að tryggja verðmætasköpun í því starfi er nauðsynlegt að huga að verndun hugverka.Óáþreifanleg verðmæti eru þau verðmæti sem í framtíðinni munu skapa hagsæld,  bæði hér á landi og í heiminum öllum.Fyrirtækjum sem eiga hugverkarétt vegnar betur, vaxa hraðar og borga hærri laun.  Leiðin út úr núverandi stöðu er varðar líf á jörðinni er í gegnum nýsköpun í iðnaði.  Þar getum við gert miklu betur með því að grænvæða ferla, aðföng og umgengni.  Þar getum við Íslendingar náð forskoti og hjálpað heiminum.Allt þetta og miklu meira í 15. Þætti Auðvarpsinswww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  25. 16

    Nýsköpun, vísindin og við - Gervigreind, Dr. Kristinn R. Þórisson

    Í þessum 14. þætti Auðvarpsins ræðum um mjög áhugavert og heitt mál í samtímanum; Gervigreind og vitvélar.  Hvað er Gervigreind?  Hvernig skilgreinum við greind og getur hún yfirleitt verið gervi?  Dr. Kristinn R. Þórisson forstöðumaður Vitvélastofnunar Íslands er gestur þáttarins.  Dr. Kristinn er margfróður um umræðuefnið og hjálpar okkur að skilja fyrirbærið greind og gervigreind.  Hvar eru fræðin stödd?  Sömuleiðis ræðum við um áhrifin á samfélagið okkar.  Við ræðum um misskiptingu valds og auðs.  Mun gervigreindin minnka misskiptinguna eða ýta undir annarskonar misskiptingu?  Mun okkar norræna velferðarríki lifa af þessa byltingu sem fram undan er? Ef ekki hvað kemur þá í staðinn? Hverjar eru ógnanirnar og ekki síður hver eru tækifærin sem við okkur blasa,  smágagnalandinu Íslandi.  Hvað þurfum við að gera til að nýta okkur þróunina og bæta hag lands og þjóðar.  Getum við bætt umhverfið, innviðina og skilgreint betur hlutverkin til að flýta þróuninni?  Aldeilis,  segir Kristinn.Er lausnin á umferðarvanda Reykjavíkurborgar fólgin í nýtingu gervigreindar?  Ef svo hvað þurfum við að gera?  Getum við nýtt vegina betur?  Er það t.d. úrelt fyrirbæri að nota bara helminginn af veginum í hverja átt?  Þegar mikil umferð er vestur í bæ af hverju notum við ekki allar akreinarnar til að komast þangað?  Er hægt að stýra umferð í takt við álag með hjálp vitvéla? Svarið er í 14. þætti Auðvarpsins. www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  26. 15

    Nýsköpun, vísindin og við - Skordýrafræðingurinn dr. Gia Aradóttir

    Í þessu Auðvarpi ræðum við um mál málanna.  Hvernig fæðum við heiminn?  Hvernig nýtum við vísindin til að efla fæðuöryggi, bæði okkar og alls heimsins. Er erfðafræði svarið? Eru skordýrin svarið?  Hvernig nýtum við tímavélar til að flýta þróun plantna þannig að þær þjóni okkur betur, séu “umhverfisvænni“, að þær geti betur varist sjúkdómum og ásókn sníkjudýra.Hver eru tækifærin á Íslandi og hvernig stuðlum við að samtali á milli vísinda, bænda og samfélagsins.  Hvernig getur hið opinbera hjálpað.Við komum með lausnina á því hvernig búvörusamningar ættu að vera settir upp.  Til að ýta undir nýsköpun og framþróun.Já – svörin eru öll í Auðvarpinu,  eftir rétt tæplega klukkutíma verður heimurinn betri!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  27. 14

    X-Nýsköpun, vísindin og við - Jón Steindór Valdimarsson

    X-Nýsköpun Jón Steindór ValdimarssonJón Steindór Valdimarsson er fulltrúi Viðreisnar í síðasta pólitíska þættinum,  allavega í bili. Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í stýringum á áherslum í nýsköpun.  Jón hefur verið viðloðandi nýsköpunarumhverfið í langan tíma og hefur frá mörgu að segja.Tólfti þáttur Auðvarpsins er jafnframt sjötti og síðasti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.  Í þessum þætti deilir Jón með okkur sinni sýn.  Hann varar okkur við of mikilli stýringu,  fer yfir fortíðina og hvað við getum lært af fyrri áherslum og ákvörðunum,  t.d. er varðar loðdýrarækt og innleiðingu hitaveitunnar.  Hann fer sömuleiðis yfir eigin feril í nýsköpun,  hvernig hann ásamt félögum sínum sá tækifæri í geisladisknum og hvernig það tækifæri kom og fór.X-Nýsköpunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  28. 13

    X-Nýsköpun, vísindin og við - Ólafur Þór Gunnarsson

    X-Nýsköpun Ólafur Þór GunnarssonÓlafur Þór Gunnarsson kemur hjólandi í þennan þátt.  Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira.  Eins og við er að búast er lækninum Ólafi tíðrætt um nýsköpun í heilbrigðisgeiranum.Ellefti þáttur Auðvarpsins er jafnframt fimmti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.  Hvernig nýtum við okkur þekkingu og hugmyndir fólksins í landinu til að byggja upp betra samfélag?  Gerist þetta að sjálfu sér og hvernig geta stjórnvöld hjálpað?Í þessum þætti er áherslan á heilbrigðistæknina,  hvernig ýtum við undir og hjálpum okkar fólki að skapa og gera samfélagið betra.  Eru t.d. viðbrögð okkar og stjórnun í heilbrigðiskerfinu á tímum heimsfaraldurs til útflutnings?  Ólafur fer yfir málið ásamt því t.d. að ræða hvernig samfélagið getur ýtt undir ábyrga hegðun frumkvöðla með því að vera til staðar í upphafi og styðja vel við bakið á nýsköpun.X-Nýsköpunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  29. 12

    X-Nýsköpun, vísindin og við - Smári McCarthy

    X-Nýsköpun, Smári McCarthySmári McCarthy er gestur okkar í þessum þætti.  Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira.  T.d. hvernig við Íslendingar gætum eignast okkar eigin geimfara.Tíundi þáttur Auðvarpsins er jafnframt fjórði þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.  Hvernig nýtum við okkur þekkingu og hugmyndir fólksins í landinu til að byggja upp betra samfélag,  þurfum við að hjálpa fólki til að nýta sér þekkingu sína?  Er kerfið að hjálpa eða þvælast fyrir.Í þessum þætti fer fráfarandi þingmaður Pírata,  Smári McCarthy vel yfir sínar áherslur á tækifærunum sem við okkur blasa.  Segja má að þar sem Smári er að hætta í pólitík sé hann skemmtilega opinn og hispurslaus í sinni orðræðu.  Hann fer inná samanburð á Íslandi og Suður Kóreu ásamt að velta fyrir sér af hverju við Íslendingar erum feimnir við að gerast aðilar að erlendum stofnunum.  X-Nýsköpunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  30. 11

    X-Nýsköpun, vísindin og við - Logi Einarsson

    X-Nýsköpun, Logi EinarssonLogi Einarsson er gestur okkar í þessum þætti, sem ber undirtitilinn „með Loga“.  Hann fer yfir hugmyndir sínar og Samfylkingarinnar um vísindalega nýsköpun og hlutverk hennar í framþróun samfélagsins.Níundi þáttur Auðvarpsins er þriðji þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.  Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum okkur framþróun í vísindum og rannsóknum samfélaginu til heilla?Í þessum þætti fer formaður Samfylkingarinnar,  Logi Einarsson vel yfir sínar áherslur á tækifærunum sem við okkur blasa og eins hvers ber að varast.  Að við þurfum líka að huga að siðfræðinni og áhrifa þeirra breytinga sem eru samfara framþróun á fólkið í landinu.  Hann ræðir um Unuhús, Loka Laufeyjarson og bóndann á Hala.  X-Nýsköpunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  31. 10

    X-Nýsköpun, vísindin og við - Lilja Alfreðsdóttir

    X-Nýsköpun, Lilja AlfreðsdóttirLilja Alfreðsdóttir er gestur okkar í þessum þætti.  Hún fer yfir hugmyndir sínar og Framsóknarflokksins um vísindalega nýsköpun og hlutverk hennar í framþróun samfélagsins.Áttundi þáttur Auðvarpsins er annar þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.  Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum okkur framþróun í vísindum og rannsóknum samfélaginu til heilla?Í þessum þætti fer Mennta og Menningarmálaráðherra,  Lilja Alfreðsdóttir vel yfir sínar áherslur á tækifærunum sem við okkur blasa og hvernig við sem samfélag getum nýtt okkur vísindin og nýsköpun til að grípa þau.  Hún fer yfir mikilvægi 4. stoðarinnar, hugverkaiðnaðarins í efnahaglegu tilliti, tækifærin í landbúnaði og fl.X-Nýsköpunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  32. 9

    X-Nýsköpun, vísindin og við - Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

    X-Nýsköpun, Þórdís Kolbrún Reykfjörð GylfadóttirÞórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir heimsækir okkur Einar Mäntylä í Grósku og deilir sínum hugmyndum um hlutverk vísindalegrar nýsköpunar í samfélaginu okkar.Sjöundi þáttur Auðvarpsins er í raun fyrsti þáttur sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.  Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum okkur framþróun í vísindum og rannsóknum samfélaginu til heilla?Fyrst til að stíga á stokk er ráðherra nýsköpunarmála Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur.  Í þættinum förum við yfir víðan völl tækifæranna.  Ræðum útflutning á vetni, húshitun í Þýskalandi,   hvernig hitaveituvæðingin var ígildi tunglskots á sínum tíma.  Hvernig við getum sannanlega haft áhrif til góðs á  hnattrænar áskoranir eins og loftslagsmálin, orkuskiptin og fleira.X-Nýsköpunwww.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  33. 8

    Nýsköpun, vísindin og við - Landsbjörg og lausnamótið með Guðbrandi Erni Arnarsyni

    Dagana 4. til 7. maí 2021 stendur Auðna Tæknitorg fyrir lausnamóti í samstarfi við Landsbjörgu og fleiri aðila.  Hugmyndin að baki lausnamótinu er að stefna saman hópi fólks með mismunandi menntun, bakgrunn og reynslu til að hanna og setja fram lausnir á fyrirfram skilgreindum áskorunum.       Áskoranirnar koma frá björgunarsveitarfólkinu sjálfu og var safnað saman í aðdraganda lausnamótsins.       Í þættinum förum við yfir fjölbreytt hlutverk björgunarsveita á Íslandi og þær áskoranir sem þær standa frammi fyrir á hverjum degi.  Við ræðum hvernig við sem samfélag getum hjálpað björgunarsveitunum.  Hvernig getum við orðið að liði við að bregðast við þessum áskorunum og komið með lausnir? Lausnir sem síðar gætu orðið að búnaði eða vöru sem gæti gagnast björgunarsveitum um allan heim í störfum sínum.  Getum við t.d. nýtt okkur reynslu Evrópsku Geimvísindastofnunarinnar (ESA) við gerð hlífðarfatnaðar eða næringar?        Til að þetta megi takast þurfum við fjölbreyttan hóp þátttakenda, allt frá listamönnum, næringafræðingum og heilbrigðisstarfsfólki til tölvunarfræðinga  og verkfræðinga og allt þar á milli.         Allar frekari upplýsingar um samstarfsaðila, dagskrá og fyrirkomulag er að finna á audna.is Skráning er hér: https://ice-sar.missions.dev/en/event/www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  34. 7

    Nýsköpun, vísindin og við - Marel, Össur og hugverkaverndin

    Í tilefni af alþjóðadegi hugverkaverndar - World Intellectual Property day, þann 26. apríl 2021 fáum við Tatjönu Latinovic hugverkastjóra Össurar og Guðmund Þór Reynaldsson hugverkastjóra Marel í heimsókn.  Hugverkadagurinn er að þessu sinni helgaður áhrifum hugverka á rekstur, viðgang og vöxt lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þó hvorki Össur né Marel teljist lítil eða meðalstór fyrirtæki í dag þá voru þau það sannanlega í upphafi. Það er því fróðlegt að fá innsýn inn í hvernig þessi tvö fyrirtæki, sannkölluð krúnudjásn íslensks nýsköpunarumhverfis, líta á hugverkavernd. Við ræðum hugverkastefnu þessara fyrirtækja og hvernig hugverkavernd hefur verið lykilþáttur í að skapa þessum alþjóðlegu risum samkeppnisforskot.  Einnig förum við yfir hvað minni nýsköpunarfyrirtæki geta lært og hvaða áherslu íslenskt samfélag ætti að leggja til að ýta undir jákvæða þróun á þessu sviði. Hvernig nýtum við okkur hugverkavernd til að skapa okkur samkeppnisforskot?www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  35. 6

    Nýsköpun, vísindin og við - Hugverkavernd með Jóni Gunnarssyni

    Fjórði þáttur fjallar um hugverkavernd.     Krúnudjásn,  hvað er það?  Hvað gerist við verðmæti Apple ef höfuðstövarnar brenna? Af hverju þarf bara eina Hugverkastofu á Íslandi?  Hver er með einlaleyfi á einkaleyfum?      Jón Gunnarsson samskiptastjóri Hugverkastofunar leiðir okkur í allann sannleik um hugverkavernd.  Hvað það er, og hversu nauðsynleg slík vernd er.    Um leið lærum við um landamæri þekkingar mannkyns og hvernig við breytum óáþreifanlegum verðmætum í eignir sem geta gengið kaupum og sölum.       Einar Mäntylä tekur þátt í umræðuni með okkur og tengir hugverkavernd við tækniyfirfærslu og vísindalega nýsköpun.       www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  36. 5

    Nýsköpun, vísindin og við - Masterclass og Envralys

    Í þriðja þætti fáum við Pál Líndal í heimsókn og ræðum vegferð hans og Envralys úr háskólaumhverfinu  yfir til atvinnulífsins.  Hvernig Masterclassinn hjálpaði og opnaði augu Páls fyrir möguleikunum og spurningunum sem þarf að svara og ræða.       Auðna stendur fyrir Masterclössum reglulega,  þar sem rannsakendum og starfsmönnum háskólanna gefst tækifæri til að máta verkefnin sín við kröfur viðskiptalífsins.  Hvað þarf að hafa í huga og hvernig og hvenær er aðgerða þörf.    Sjá frekari upplýsingar á audna.is      Fræðumst í leiðinni um umhverfissálfræði og tólin sem Envralys hefur þróað til að bæta samtalið við skipulag og framkvæmdir.   www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  37. 4

    Nýsköpun, vísindin og við - Vísindagarðar í Grósku

    Í þessum öðrum þætti Auðvarpsins, Nýsköpun, vísindin og við fáum við Sigurð Magnús Garðarsson stjórnarformann Vísindagarða í heimsókn til að ræða Vísindagarða  í Grósku og svæðið í kring.Við fræðumst um tilganginn og erindið sem Vísindagarðar eiga í íslenskt samfélag.   Eru Vísindagarðar eitt af pússlunum sem vantar til að auka verðmætasköpun og ýta undir vísindalega nýsköpun á Íslandi.Hlustið og fræðist um ótrúlega lifandi og skemmtilegt umhverfi sem er að myndast í Vatnsmýrinni,  svari okkar Íslendinga við Kísildalnum!www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

  38. 3

    Nýsköpun, vísindin og við - Auðna tæknitorg

    Í fyrsta Auðvarpinu kynnumst við starfsmönnum Auðnu tæknitorgs þar sem við ræðum tækniyfirfærslu og hlutverk Auðnu.Hvernig getum við hagnýtt okkur vísinda- og rannsóknarstarfið sem er unnið í okkar frábæru háskólum og rannsóknarstofnunum?  Við erum hér til að stuðla að bættu samfélagi og meiri verðmætasköpun með hjálp Nýsköpunar.Auðvarpinu er ætlað að vera vettvangur kynningar og umræðu um starf okkar við tækniyfirfærslu.www.audna.is - www.edih.is - www.visindagardar.is - www.ihpc.is

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is

HOSTED BY

Sverrir Geirdal

Frequently Asked Questions

How many episodes does Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við have?

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við currently has 38 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við about?

Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim...

How often does Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við release new episodes?

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við has 38 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við?

You can listen to Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við?

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við is created and hosted by Sverrir Geirdal.
URL copied to clipboard!