Öryggismál og hafið umhverfis Ísland, áhrif veiðigjalds í sjávarbyggðum, tollastefna Bandaríkjaforseta episode artwork

EPISODE · Apr 2, 2025 · 20 MIN

Öryggismál og hafið umhverfis Ísland, áhrif veiðigjalds í sjávarbyggðum, tollastefna Bandaríkjaforseta

from Spegillinn

Íslendingar hafa sýnt af sér ákveðna værukærð hvað varðar eftirlit með hafinu og auðlindum þess. Þótt ekki sé hægt að segja að við höfum trassað ábyrgð okkar í varnarmálum þurfa menn að stíga upp og tryggja við séum verðugir bandamenn í alþjóðlegu samstarfi, segir Auðunn Kristinsson, aðgerðastjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi gætu haft mikil áhrif í sjávarbyggðum víða um land. Vífill Karlsson, prófessor í hagfræði, telur að ef breytingarnar valdi erfiðleikum í sjávarútvegi bitni það frekar á fiskvinnslu í landi en fiskveiðum. Afar mikilvægt sé að gefa sér góðan tíma og skoða vandlega áhrif af stórum ákvörðunum eins og um hækkun veiðigjalds. Ágúst Ólafsson ræðir við Vífil. Stjórnvöld og markaðir víða um heim bíða nánast með öndina í hálsinum eftir tilkynningu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um það, á hvaða innflutta varning hann hyggst leggja nýja eða hærri tolla en áður, og hversu háir þeir verða. Forsetinn er enda búinn að byggja upp heilmiklar væntingar - eða áhyggjur - með málflutningi sínum um boðaða frelsun Bandaríkjanna frá þeim mikla órétti sem hann telur Bandaríkin hafa verið beitt áratugum saman af nánast öllum sínum viðskiptaríkjum. Ekki eru allir sannfærðir um að forsetinn nái markmiðum sínum með tollunum og sjá nokkrar grundvallar mótsagnir í stefnu hans. Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 2, 2025

Embed this episode

Ready to play

Öryggismál og hafið umhverfis Ísland, áhrif veiðigjalds í sjávarbyggðum, tollastefna Bandaríkjaforseta

0:00 20:01

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on April 2, 2025.

Can I download this Spegillinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!