P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2 episode artwork

EPISODE · Apr 6, 2026 · 33 MIN

P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2

from Álhatturinn

Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkjunni í sitt eigið persónulega einræðisríki, þar sem enginn er óhultur. Nokkuð sem virðist eiga jafnt við um hans nánustu fjölskyldu sem og æðstu samstarfsmenn, sem hafa margir hverjir þurft að þola ótrúlega meðferð og niðurlægingu í nafni trúarinnar og agans.Strákarnir fara vel yfir hið miskunnarlausa valdarán sem átti sér stað eftir dauða Hubbards árið 1986 þegar Miscavige var rétt um tvítugt. Þeir félagar skoða hvernig hinum metnaðarfulla unga manni tókst að rýma brautina og hrekja réttmæta arftaka á borð við hjónin Pat og Anne Broeker út í kuldann og algjöra einangrun. Hvað varð raunverulega um Pat Broeker og af hverju sá kirkjan ástæðu til að eyða yfir 10 milljónum dollara í að láta einkaspæjarana Paul og Greg Powell elta hann á hverjum einasta degi í tvo áratugi? Var Pat mögulega með leynileg skjöl í fórum sínum sem gátu steypt Miscavige af stóli og afhjúpað svikin við hinstu óskir Hubbards?Félagarnir skoða  hrollvekjandi vitnisburði þeirra sem þekkja leiðtogann best og hvernig hann herjar á sína nánustu með aðferðum sem minna einna helst á vinnubrögð mafíu. Hvaða sögu hefur Ron Miscavige faðir Davids að segja um soninn, sem hann kynnti sjálfur fyrir söfnuðnum? Eftir að Ron flúði samtökin árið 2012 voru sömu Powell-feðgarnir og njósnuðu um Broeker hjónin fengnir til að vakta hvert einasta spor hans í skiptum fyrir 10.000 dollara á viku. Getur virkilega verið að David hafi skipað einkaspæjurum sínum sitja hjá aðgerðarlausir án þess að grípa inní og láta föður sinn hreinlega deyja þegar þeir sáu hann grípa um brjósti sér á bílastæði og virðast fá hjartaáfall? Þegar spæjararnir hringdu í David í geðshræringu og báðu um leiðbeiningar var svarið einfalt, kalt  og hrollvekjandi: „Ef það er hans tími til að deyja, látið hann þá deyja. Ekki grípa inn í.“Stóra spurningin sem brennur á öllum er svo hvar í ósköpunum Shelly Miscavige sé niðurkomin en eiginkona leiðtogans hefur ekki sést opinberlega í tæp 20 ár. Álhatturinn kafar einnig ofan í dularfullt andlát móður hennar, Flo Barnett, sem sögð er hafa framið sjálfsvíg með fjórum skotum úr löngum Ruger-riffli. En hvernig getur smágerð veikburða eldri kona skotið sjálfa sig þrisvar í brjóstið og svo í höfuðið með tæplega metra löngu vopni þar sem hún náði varla til gikksins? Strákarnir kynna sér rjúkandi byssukúluna sem lögreglan gat aldrei útskýrt: hvers vegna fundust fimm eydd skothylki á vettvangi þegar aðeins fjögur skot hæfðu líkamann? Hvað varð um fimmta skotið?Allt þetta og fleiri stórar níþungar sleggjur í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér hvort vísindakirkjan stundi skipulagðar njósnir og pyntingar á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar.Support the showUM ÁLHATTINNÍ þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 6, 2026

Embed this episode

Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkjunni í sitt eigið persónulega einræðisríki, þar sem enginn er óhultur. Nokkuð sem virðist eiga ja...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

NOW PLAYING

P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2

0:00 33:51

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Álhatturinn?

This episode is 33 minutes long.

When was this Álhatturinn episode published?

This episode was published on April 6, 2026.

Can I download this Álhatturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!