Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers episode artwork

EPISODE · Feb 1, 2024 · 20 MIN

Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers

from Spegillinn

1. febrúar 2024 Sögulegar og pólitískar ástæður fyrir því að palestínska flóttamannahjálpin er að mestu fjármögnuð af nokkrum öflugum Vesturlöndum. Það gildir líka um ástæður þess að hin vellauðugu olíuríki við Persaflóann skuli ekki einfaldlega taka við keflinu undir þeim aðstæðum sem nú eru uppi, og líka því, að Egyptar vilja ekki opna landamærin að Gaza og taka á móti þeim milljónum Palestínumanna sem þar búa við sárustu neyð. Magnús Þorkell Bernharðsson heldur áfram að skýra nokkrar helstu flækjurnar í þeirri skelfilegu stöðu sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs. Ungverjar létu í dag af andstöðu sinni við áframhaldandi stuðning Evrópusambandsins við stríðsrekstur Úkraínumanna gegn Rússum. Á þessu er fyrst og fremst ein skýring að mati stjórnmálaskýrenda: Viktor Orban, forseti Ungverjalands, taldi sig ekki komast lengra í andófi sínu gegn stefnu ESB í þessu máli og lúffaði, til að tryggja landi sínu þá 50 milljarða Evra, sem Ungverjar hafa ekki fengið úthlutað úr þróunarsjóði sambandsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel. Fjölmiðlar í Úkraínu hafa síðustu daga fullyrt og vitnað í ónafngreinda heimildarmenn innan stjórnkerfisins að Volodymyr Zelensky forseti vilji losna við Valerii Zaluzhny hershöfðingja sem æðsta yfirmann hersins. Nokkrir þingmenn á úkraínska þinginu hafa einnig gefið í skyn að yfirmannaskipti liggi í loftinu og Zaluzhny hafi verið boðið að taka við stjórn Þjóðaröryggis- og varnarmálaráðs landsins. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

NOW PLAYING

Palestína, stuðningur ESB við Úkraínu og yfirmaður Úkraínuhers

0:00 20:46

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on February 1, 2024.

What is this episode about?

1. febrúar 2024 Sögulegar og pólitískar ástæður fyrir því að palestínska flóttamannahjálpin er að mestu fjármögnuð af nokkrum öflugum Vesturlöndum. Það gildir líka um ástæður þess að hin vellauðugu olíuríki við Persaflóann skuli ekki einfaldlega...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!