EPISODE · Jun 18, 2026 · 19 MIN
Ráðherrafundur NATO í Brussel, baráttan um ferjuna Baldur og lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu
from Spegillinn
Viðvera Bandaríkjahers í Evrópu verður endurskoðuð á næstu sex mánuðum, sagði Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna á ráðherrafundi NATO í Brussel í morgun. Og hann kom kyrfilega á framfæri óánægju stjórnvalda í Washington með viðbrögð evrópskra aðildarríkja, þegar hernaðurinn gegn Íran hófst í byrjun febrúar. Fulltrúar þriggja sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum funduðu með innviðaráðherra í dag um siglingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs til Vestmannaeyja. Bæjarstjórinn í Vesturbyggð segir það hafa valdið miklu tjóni að missa Baldur úr siglingum yfir Breiðarfjörð og mögulega hafi Vegagerðin og ráðuneytið vanmetið áhrifin af þeirri ákvörðun. Upplýsingaóreiðan var til umræðu á stórri ráðstefnu í Reykjavík í dag, sem bar yfirskriftina: „Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu.“ Þar kom fram að smæðin hér á landi hjálpar til við að sporna við því að óprúttnir aðilar komi villandi upplýsingum til fólks, en sífellt erfiðara verður þó að greina á milli réttra og rangra upplýsinga. Íslendingar þurfi að læra af reynslu annarra ríkja.
Embed this episode
NOW PLAYING
Ráðherrafundur NATO í Brussel, baráttan um ferjuna Baldur og lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.