EPISODE · Apr 29, 2026 · 15 MIN
Rannsóknin á viðskiptunum með Sóltún
from Þetta helst
Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á Suðurnesjum á viðskiptum með hjúkrunarheimilið Sóltún árið 2009. Rannsóknin byggir á kæru frá fyrrverandi eiganda og eins stofnanda hjúkrunarheimilisins Sóltúns, Jóhanni Óla Guðmundssyni. Hann telur, samkvæmt kærunni sem fréttastofa hefur undir höndum, að tveir af núverandi eigendum Sóltúns hafi gerst sekir um meint fjársvik með því að hafa ekki greitt umsamið kaupverð upp á tvo milljarða króna fyrir móðurfélag Sóltúns, Öldung hf. Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður annars eiganda Sóltúns, segir að kæran sé tilhæfulaus með öllu og að rannsókn málsins verði vonandi felld niður sem fyrst. Fjallað er um rannsókn málsins, viðskiptin með Sóltún árið 2009 og sögu þessa þekkta hjúkrunarheimilisins. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
NOW PLAYING
Rannsóknin á viðskiptunum með Sóltún
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 2, 2026 ·47m
Jul 1, 2026 ·59m
Jun 26, 2026 ·26m
Jun 25, 2026 ·63m
Jun 25, 2026 ·56m