Rauða borðið 10. des - Húsnæðislán, fíkn og sjálfskaði, þjóðaröryggi og ungt fólk í pólitík episode artwork

EPISODE · Dec 10, 2025 · 2H 41M

Rauða borðið 10. des - Húsnæðislán, fíkn og sjálfskaði, þjóðaröryggi og ungt fólk í pólitík

from Rauða borðið · host Samstöðin

Miðvikudagur 10. desember Húsnæðislán, fíkn og sjálfskaði, þjóðaröryggi og ungt fólk í pólitík Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna ræðir við Gunnar Smára um málið sem samtökin töpuðu fyrir Hæstarétti i dag, önnur mál sem enn eru útistandandi og hvaða afleiðingar þessi mál hafa fyrir hinn ómögulega húsnæðislánamarkað sem Íslendingar búa við. Harpa Henrysdóttir, móðir í Reykjavík, og Hjörtur, 17 ára gamall sonur hennar, segja Birni Þorláks áhrifamikla sögu af baráttu sonarins við vanlíðan, fíkn og sjálfskaða. Hjörtur var aðeins 13 ára gamall þegar hann leitaði sér hjálpar í Hollandi. Líf hans stóð þá tæpt en engin leið var að komast að í geðmeðferð innanlands. Hann er fyrsta barnið sem fær greitt frá Sjúkratryggingum fyrir meðferð við geðsjúkdómi utan landsteinanna. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um hina undarlegu þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna þar sem blandað er saman raunverulegri stefnumörkun, upphafningu Trump forseta og blammeringar gagnvart Evrópu og öðrum heimshlutum. Forprófkjör ungs jafnaðarfólks fer fram í fyrsta skipti í sögu Samfylkingarinnar. Hlutur ungra borgarfulltrúa hefur verið lítill sem enginn áratugum saman. Þau Soffía Svanhvít Árnadóttir varaforseti og Jóhannes Óli Sveinsson, kallaður Jóli, forseti ungs jafnaðarfólks, ræða mikilvægi þess að yngra fólk fái ítök í borgarstjórn Reykjavíkur í samtali við Björn Þorláks.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 10, 2025

Embed this episode

Ready to play

Rauða borðið 10. des - Húsnæðislán, fíkn og sjálfskaði, þjóðaröryggi og ungt fólk í pólitík

0:00 2:41:52

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Rauða borðið?

This episode is 2 hours and 41 minutes long.

When was this Rauða borðið episode published?

This episode was published on December 10, 2025.

Can I download this Rauða borðið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!