Rauða borðið 25. júní: Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi episode artwork

EPISODE · Jun 25, 2025 · 4H 52M

Rauða borðið 25. júní: Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi

from Rauða borðið · host Samstöðin

Miðvikudagur 25. júní Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi Við hefjum leik með viðbrögðum formanns utanríkismálanefndar Alþingis við tíðindum dagsins í Haag. Pawel Bartoszek bregst við tíðindum um að langflest NATO-ríki greiða 5 prósent af þjóðarframleiðslu til varnamála og framlög Íslands stóraukast. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur gagnrýnir valkyrjur ríkisstjórnarinnar fyrir að bjóða landsmönnum upp á óbreytta utanríkisstefnu þrátt fyrir gerbreytta heimsmynd. Hún segir Gunnari Smára hvað vantar í stefnuna. Ragnheiður Davíðsdóttir, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson ræða það sem hæst ber og tala af reynslu við Sigurjón Magnús Egilsson. Af nógu er að taka þessa dagana hvað varðar þjóðmálin og virðist langt í hina árlegu sumargúrku. Eiríkur Björn Björgvinsson er í hópi nýrra þingmanna. Björn Þorláks rekur garnirnar úr Eiríki og leitast við að kynnast persónulegri hlið hans. Skelfilegt flugslys sem reyndi mikið á Eirík er til umræðu og hvaða mælikvarða hann notaði til að velja sér eiginkonu! Og það verður einnig umræða um að þingmenn tali um ykkur og okkur og með því sé sáldrað efasemdum um að veiðigjöldin séu landsbyggðarskattur - til að skapa efasemdir. Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifaði leiðara um þetta og Sigurjón Magnús ræðir við hann. Benedikt Kristjánsson, söngvari og skipuleggjandi hátíðarinnar Sumartónleikar í Skálholti, 28. júní - 13. júlí, segir okkur frá stórkostlegri dagskrá tónleikanna í ár. Hátíðin fagnar 50 ára afmæli og eru haldnir til heiðurs Helgu Ingólfsdóttur og mun Jean Rondeau leika á sembalinn hennar. Benedikt ræðir líka um sjálfboðaliðun menningarinnar, um tengslin við fjármögnunina, um umboðsmenn og eigin söng. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir við hann. Við ljúkum dagskránni með því að Anahita B, aðgerðarsinni frá Íran ræðir um Íran og réttarhöldin gegn Hval hf. Anahita segir frá stríðinu frá sjónarhóli hins almenna Írana, um hvernig þjóðin upplifir sig í raun fasta milli tveggja elda, stríðinu við kúgandi klerka og stríðinu við vesturlönd en báðir aðilar sjá hag sinn í að hefta frelsi og mannhelgi almennings.

NOW PLAYING

Rauða borðið 25. júní: Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi

0:00 4:52:41

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Rauða borðið?

This episode is 4 hours and 52 minutes long.

When was this Rauða borðið episode published?

This episode was published on June 25, 2025.

What is this episode about?

Miðvikudagur 25. júní Utanríkisstefna, reynsluboltar, þingmaður, þjóðin, sumartónleikar og aktivismi Við hefjum leik með viðbrögðum formanns utanríkismálanefndar Alþingis við tíðindum dagsins í Haag. Pawel Bartoszek bregst við tíðindum um að...

Can I download this Rauða borðið episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!