Ritskoðun á Hugo-verðlaunum, Sven Nordqvist og Kōbō Abe episode artwork

EPISODE · Feb 24, 2024 · 50 MIN

Ritskoðun á Hugo-verðlaunum, Sven Nordqvist og Kōbō Abe

from Bara bækur

Við byrjum á að segja frá vandræðagangi í heimi furðusagna og vísindaskáldskapar. Hugo-verðlaunin eru stærstu og virtustu verðlaun heims á því sviði bókmenntanna og hafa verið veitt árlega áratugum saman. Nú liggur fyrir að einhverjum höfundum og bókum þeirra, sem þóttu jafnvel sigurstranglegar, var stungið undir stól. Allt var það gert viljandi hefur nú komið í ljós og það af pólitískum ástæðum. Á undanförnum árum hefur bókaútgáfan Kvistur endurútgefið og endurþýtt sígildu barnabækurnar um þá félaga Pétur og köttinn Brand eftir sænska mynd- og rithöfundinn Sven Nordqvist. Þessar myndríku og fjörugu bækur komu út undir lok síðustu aldar hér á landi í þýðingu Þorsteins frá Hamri og notið vinsælda hjá ungum sem öldnum. Héðan eru hugsanlega engar undankomuleiðir, sama hvað við mokum og mokum sandi, sama hvað við prílum upp á bakkana. Þeir molna stöðugt undan okkur og sandurinn þjarmar að. Þetta undarlega og martraðarkennda ástand er sögusviðið í einni frægustu skáldsögu japanska rithöfundarins Kōbō Abe sem við rýnum í hér á eftir, Sunna no onna, The woman in the Dunes. Kōbō Abe hefði fagnað aldarafmæli um þessar mundir og við höldum upp á það með því að rýna í þessa frábæru skáldsögu sem kom Abe rækilega á heimskortið. Viðmælendur: Kári Tulinius, Ásta Halldóra Ólafsdóttir, Þorbjörg Karlsdóttir og Brynja Hjálmsdóttir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Ritskoðun á Hugo-verðlaunum, Sven Nordqvist og Kōbō Abe

0:00 50:37

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on February 24, 2024.

What is this episode about?

Við byrjum á að segja frá vandræðagangi í heimi furðusagna og vísindaskáldskapar. Hugo-verðlaunin eru stærstu og virtustu verðlaun heims á því sviði bókmenntanna og hafa verið veitt árlega áratugum saman. Nú liggur fyrir að einhverjum höfundum og...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!