EPISODE · Aug 25, 2026 · 56 MIN
Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö!
from Víðsjá
Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður fagnað sérstaklega á hátíðinni. Tilrauna- og rannsóknarverkefnið Tu Ha? Tu Bjö! sendi frá sér plötu um liðna helgi. Hljómsveitin er skipuð tveimur trompetleikurum og tveimur tenór saxófónleikurum; þeim Tuma Torfasyni, Hannesi Arasyni, Tuma Árnasyni og Björgvini Ragnari Hjálmarssyni. Við fáum líka til okkar í hljóðstofu sellóleikarann og tónskáldið Þórdísi Gerði Jónsdóttur, en hún gaf út plötu með eigin tónsmíðum fyrr í mánuðinum. Platan heitir Hljóð í ljóði og ber nafn með rentu, en lögin samdi Þórdís út frá gömlum og nýjum ljóðum íslensk ljóð þannig að stemning hvers ljóðs var þýdd úr texta yfir tónlist. En áður en við vindum okkur alfarið í jazzinn heyrum við pistil frá myndlistarrýninum Völu Sigþrúðar- Jónsdóttur, um sýningu Romans Signers í Skaftfelli á Seyðisfirði, sem stendur yfirút septembermánuð.
Embed this episode
NOW PLAYING
Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö!
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.