Samkeppnislagabrot skipafélaga, vonskuspá og fjaðrafok vegna Nóbels episode artwork

EPISODE · Sep 1, 2023 · 30 MIN

Samkeppnislagabrot skipafélaga, vonskuspá og fjaðrafok vegna Nóbels

from Spegillinn

Spegillinn 1. september 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður segir að fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni af samráði Eimskips og Samskipa séu farin að stíga fyrstu skrefin til að sækja rétt sinn. Viðbúnaður er í Grindavíkurhöfn vegna stórstreymis og vonskuveðurs. Sigurður Arnar Kristmundsson hafnarstjóri segir að búist sé við að ölduhæð nái átta metrum þar annað kvöld og hætta á flóði. Haukur Holm talaði við hann. Ekki var fallist á kröfu kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins True North um lögbann á hvalveiðar Hvals. Ljósmæður á Norðurlandi hafa áhyggjur af fækkun ljósmæðra á landsbyggðinni. Þær telja að hún geti stafað af því að fjarnám er ekki í boði í ljósmóðurfræði. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræddi við Ingibjörg Jónsdóttur formann Norðurlandsdeildar Ljósmæðrafélags Íslands. París varð í dag fyrst höfuðborga Evrópu til að banna rafskútur í skammtímaleigu á götum borgarinnar. Hjólin verða flutt út fyrir borgina og til nágrannaríkjanna. Valgerður Gréta Gröndal sagði frá. ----------------------- Forstjórar Samskipa og Eimskips fóru saman í veiði og í ferðalög til útlanda, þótt þeir segðu Samkeppniseftirlitinu að þeir þekktust vart eða jafnvel hötuðust. Stjórnendur réðu ráðum sínum um samkeppnisbrot á kaffihúsinu Mokka á Skólavörðustíg. Samkeppniseftirlitið mælist til þess að stjórnvöld ráðist í aðgerðir til að draga úr samkeppnishindrunum á flutningamarkaði, auka aðhald og efla þannig samkeppni. Benedikt Sigurðsson fréttamaður ræddi við Pál Gunnar Pálsson forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Öllum sendiherrum ríkja sem eiga sendiráð í Svíþjóð er boðið til verðlaunafhendingarinnar sjálfrar en í fyrra var sendiherrum Rússlands, Belarús og Írans ekki boðið. Boðið hefur vakið hörð viðbrögð hjá sænskum stjórnmálamönnum sem segjast sumir hverjir ekki tilbúnir að mæta með fulltrúum ríkis sem geri daglega grimmilegar og viðurstyggilegar árásir á Úkraínu.

NOW PLAYING

Samkeppnislagabrot skipafélaga, vonskuspá og fjaðrafok vegna Nóbels

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 30 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on September 1, 2023.

What is this episode about?

Spegillinn 1. september 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Páll Rúnar Mikael Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður segir að fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni af samráði...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!