Skip to content
Samsæriskenningar episode artwork

Jun 30, 2023 1 hr

Samsæriskenningar

from Álhatturinn Hosted by Álhatturinn

Í þessum fyrsta þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar conceptið fyrir hlaðvarpið Álhattinn, almennt um samsæriskenningar, þeirra fyrstu upplifun af þeim og uppáhalds kenningarnar þeirra. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er Gnúsi Yones sem gefur sitt take á samsæriskenningar. Elvis lifir, Paul McCartney er dauður, Courtney drap Kurt Cobain, lentum við á tunglinu, hver byggði pýramídina, X-Files, hver stjórnar heiminum, var 9/11 samsæri, er eðlufólk til, var Covid tilraun fyrir New World Order? Þetta og margt margt fleira. Það er beinlínis hættulegt að missa af þessum þætti því eins og allir vita eru álhattar nauðsynlegur verndarbúnaður í nútíma samfélagi. Þeir vernda gagnvart hugsanalestri og heilaþvætti yfirvalda ásamt því að vera mikilvægur partur af tískuvitund unga fólksins. Að lokum gefa strákarnir einkunn á skalanum 1-10 um hvar þeir standa almennt gagnvart samsæriskenningum og setja tóninn fyrir næstu þætti! Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Í þessum fyrsta þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar conceptið fyrir hlaðvarpið Álhattinn, almennt um samsæriskenningar, þeirra fyrstu upplifun af þeim og uppáhalds kenningarnar þeirra. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er Gnúsi Yones sem gefur sitt take á samsæriskenningar. Elvis lifir, Paul McCartney er dauður, Courtney drap Kurt Cobain, lentum við á tunglinu, hver byggði pýramídina, X-Files, hver stjórnar heiminum, var 9/11 samsæri, er eðlufólk til, var Covid tilr...

Ready to play

Samsæriskenningar

0:00 1:00:43

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Álhatturinn?

This episode is 1 hour and 0 minutes long.

When was this Álhatturinn episode published?

This episode was published on June 30, 2023.

Can I download this Álhatturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.