Samskip í hart, blekkingar Trumps, kynjaðir samfélagsmiðlar unglinga episode artwork

EPISODE · Sep 27, 2023 · 30 MIN

Samskip í hart, blekkingar Trumps, kynjaðir samfélagsmiðlar unglinga

from Spegillinn

Samskip krefjast bóta frá Eimskipi fyrir að hafa borið á félagið rangar sakargiftir í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið. Ráðist var á ráðstefnugest sem bar hinsegin tákn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Lögregla rannsakar hvort árásin hafi verið hatursglæpur. Fimmtíu þúsund hafa flúið Nagorno-Karabakh í vikunni. Hafrannsóknastofnun ætlar að endurskoða áhættumat erfðablöndunar laxa. Í ágúst sluppu um 3500 laxar úr einni kví Arctic Fish í Patreksfirði. Storytel hyggst nota gervigreind við þýðingar á erlendum bókum - yfir á íslensku. Dómsmálaráðherra New York ríkis krefst þess að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna greiði 250 milljónir dollara í skaðabætur fyrir að hafa ofmetið eignir sínar umtalsvert. Þetta á hann að hafa gert til að blekkja banka og tryggingafélög til að fá lán á hagstæðum kjörum. Það er mörgum fullorðnum lokuð bók hvað ungmenni aðhafast á samfélagsmiðlum. Þórður Kristinsson doktorsnemi og framhaldsskólakennari hefur fengið að skoða efni sem unglingar á grunnskólaaldri sjá á TikTok. Hann segir að þau hagi sér með mjög kynjuðum hætti á samfélagsmiðlum. Hann segir að það sé komið nýtt félagslegt handrit - að það megi gráta og segja frá erfiðum upplifunum en það þurfi að fylgja ákveðnu skapalóni til að það sé félagslega samþykkt. Loftslagsþolið Ísland er yfirskriftin á skýrslu sem unnin var fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og birt var í gær. Skýrslan inniheldur tillögur stýrihóps á vegum ráðuneytisins fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum. Rætt er við Önnu Huldu Ólafsdóttur, sem á sæti í stýrihópnum og er yfir skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon. Margrét Júlía Ingimarsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

NOW PLAYING

Samskip í hart, blekkingar Trumps, kynjaðir samfélagsmiðlar unglinga

0:00 30:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 30 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on September 27, 2023.

What is this episode about?

Samskip krefjast bóta frá Eimskipi fyrir að hafa borið á félagið rangar sakargiftir í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið. Ráðist var á ráðstefnugest sem bar hinsegin tákn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Lögregla rannsakar...

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!