Sér tækifæri fyrir landsbyggðina episode artwork

EPISODE · Jul 29, 2026 · 30 MIN

Sér tækifæri fyrir landsbyggðina

from Gímaldið · host Gímaldið

Reinhard Reynisson, sérfræðingur í byggðamálum, segir að ný eyjastefna Evrópusambandsins, sú fyrsta sinnar tegundar, geti reynst mikilvægt innlegg fyrir Ísland í hugsanlegum aðildarviðræðum. Hún taki sérstaklega á aðstæðum sem eigi vel við íslenskan veruleika: einangrun, háum flutningskostnaði og litlum heimamörkuðum. Erla Hlynsdóttir ræðir við Reinhard um byggðamál í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Farið er yfir hvernig byggðastefna Evrópusambandsins virkar, hvaða sérkenni Íslands gætu skipt máli í hugsanlegum viðræðum og hvort byggðastefna ESB geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð.Í þættinum kemur meðal annars fram:Byggðamál eru ekki hefðbundinn málaflokkur heldur sjónarhorn sem á að tryggja jafnræði fólks óháð búsetu og hafa áhrif á stefnumótun á mörgum sviðum. Reinhard bendir á að Ísland búi yfir ákveðinni sérstöðu og nefnir nýja eyjastefnu Evrópusambandsins sem dæmi um að sambandið sé að bregðast við sérstökum aðstæðum eyjasamfélaga. Hann segir umræðuna um undanþágur oft villandi og telur í mörgum tilvikum fremur vera um að ræða eðlilega aðlögun reglna að ólíkum aðstæðum en eiginlegar undanþágur. Að hans mati byggja íslensk byggðastefna og byggðastefna ESB á svipuðum grunnhugmyndum um að jafna stöðu byggða, þótt ESB leggi jafnframt ríka áherslu á að styðja þau svæði sem verði undir í samkeppni hins sameiginlega markaðar. Reinhard telur líklegt að meiri andstaða við ESB á landsbyggðinni skýrist meðal annars af því að umræðan hafi að stórum hluta snúist um hagsmuni landbúnaðar og sjávarútvegs. Hann segir ekki unnt að fullyrða fyrirfram um áhrif ESB-aðildar á íslenskan landbúnað eða aðrar atvinnugreinar. Slíkt mat verði fyrst trúverðugt þegar fyrir liggi samningur sem hægt sé að greina. Reinhard nefnir Skotland sem dæmi um svæði sem hafi notið verulegs stuðnings úr byggðasjóðum ESB og segir jafnframt að Finnland, Svíþjóð og Írland séu þau ríki sem Íslendingar geti helst borið sig saman við þegar kemur að byggðamálum. Hann segir umræðuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þurfa meiri stillingu og jarðtengingu. Kosið verði í ágúst um hvort hefja eigi aðildarviðræður en ekki um endanlegan aðildarsamning, sem sé ekki til staðar.Frá sjónarhóli byggðamála telur Reinhard að möguleg ESB-aðild geti skapað tækifæri fyrir íslenska landsbyggð, meðal annars með auknum stuðningi við atvinnuuppbyggingu, búsetu og fjölbreytt atvinnulíf í dreifbýli.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jul 29, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Sér tækifæri fyrir landsbyggðina

0:00 30:14

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Gímaldið?

This episode is 30 minutes long.

When was this Gímaldið episode published?

This episode was published on July 29, 2026.

Can I download this Gímaldið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!