EPISODE · Jun 29, 2024 · 52 MIN
Siddharta, Drottningarnar í garðinum og Hrein
from Bara bækur
Við verðum á heimshornaflakki þættinum í dag, við förum í leiðsögn þýsk-svissneska nóbelshöfundarins Hermann Hesse til Indlands og Nepal á tímum Búddha í skáldsögunni frægu Siddharta. Áratugir eru liðnir frá því að sagan var þýdd af Haraldi Ólafssyni en hún er nú fyrst að líta dagsljósið á prenti. Ræðum við Harald í þættinum. Svo höldum við til Suður-Ameríku, til nágrannaríkjanna Argentínu og Síle. Tvær nýlegar skáldsögur þaðan komu út í íslenskum þýðingum hjá Benedikt bókaútgáfu, Hrein eftir Aliu Trabacco Zerán og Drottningarnar í garðinum eftir Caliu Sosa Villada. Við fáum til okkar Hólmfríði Garðarsdóttur prófessor í spænsku og bókmenntum og menningu rómönsku-ameríku og ræðum við hana um báðar þessar bækur. Lesarar: Haraldur Ólafsson, Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Anna Marsibil Clausen. Viðmælendur: Hólmfríður Garðarsdóttir og Haraldur Ólafsson. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
NOW PLAYING
Siddharta, Drottningarnar í garðinum og Hrein
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.