EPISODE · Sep 17, 2024 · 55 MIN
Sigurhæðir, snjallhljóðfæri, Hildur-rýni
from Víðsjá
,,Gaman að kynnast þér" er yfirskrift tónleika sem fara fram í Mengi í kvöld. Þar mætast sex tónlistarmenn með mjög ólíkan bakgrunn og ólík hljóðfæri; barokkhljóðfæri, víetnömsk hljóðfæri og gervigreindarhljóðfæri. Halla Steinunn Stefánsdóttir, barokkfiðluleikari Nordic Affect, og Nicola Privato, sem leikur á snjallhljóðfærið Stacco segja okkur frá tilraunaverkefninu, sem unnið er í samstarfi við Intelligent Instruments Lab í Reykjavík og víetnamsk-sænska tónlistarhópinn Six Tones. Einnig heyrum við ritdóm frá Grétu Sigríði Einarsdóttur. Hún var að lesa Hildi, skáldsögu eftir Satu Remö, sem kom út í Finnlandi 2022 en kom nýverið út í íslenskri þýðingu Erlu Elíasdóttur Völudóttur. En við byrjum á Akureyri, í menningarhúsinu Flóru í Sigurhæðum. Þetta er undurfagurt og einstakt hús sem er í eigu Akureyrarbæjar og hýsir ótrúlega fjölbreytta menningarstarfi. Halla hitti Kristínu Þóru Kjartansdóttur, verkefnastjóra og staðarhaldara í Sigurhæðum, sem leiddi hana um húsið. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Embed this episode
NOW PLAYING
Sigurhæðir, snjallhljóðfæri, Hildur-rýni
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.