EPISODE · Aug 11, 2026 · 17 MIN
Sjálfsmorð Schraders á hafi úti
from Þetta helst
Í þættinum í dag er sagt frá afdrifum þýsk-bandaríska uppfinningamannsins og milljónamæringsins Georg Schrader sem dvaldi á Akureyri á árunum 1912 til 1915. Í nóvember árið 1915 skaut Schrader sig á þilfarinu á síldarbátnum Helga Magra sem hann hafði fengið far með til Noregs. Fyrri heimsstyrjöldin var þá í fullum gangi og Schrader var illa haldinn af taugasjúkdómi. Í þættinum í gær var sagt frá því hvernig Schrader birtist allt í einu á Akureyri árið 1912 og dvaldi þar í góðu yfirlæti á hóteli í þrjú ár. Nafn þessa manns er heimsþekkt vegna loftventilsins sem hann bjó til, Schrader-ventilsins. Þetta er útbreiddasti ventill í heimi og er notaður á reiðhjólum, bifreiðum, flugvélum og fleiri farartækjum. Í þættinum í dag er fjallað um afdrif Georgs Schraders og brottför hans frá Íslandi árið 1915. Rætt er við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra og rithöfund, og Víði Gíslason flugmann sem er alinn upp á Akureyri. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Embed this episode
Ready to play
Sjálfsmorð Schraders á hafi úti
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.