EPISODE · Jun 21, 2025 · 50 MIN
Sjöleikur Jons Fosse og nokkrar tilnefndar bækur frá Norðurlöndum
from Bara bækur
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru rótgróin menningarstólpi, stærstu og mikilvægustu bókmenntaverðlaun á Norðurlöndum. 14 bækur eru tilnefndar, aðallega ljóð og skáldsögur eins og venjulega en í ár er líka eitt leikrit frá Noregi, sem er nokkuð óvenjulegt. Árni Mattíasson er að spæna í sig tilnefnda bunkann og ætlar að segja mér frá nokkrum verkum í lok þáttarins, við komum við í Danmörku, Svíþjóð, Álandseyjum og Noregi. Norski nóbelshöfundurinn Jon Fosse er gjarn á að setja fram völundarhús með sínu vitundarstreymi og endurtekningasama prósa, ljóðum og leikritum. Dimma bókaútgáfa hefur gefið út þónokkuð af verkum Fosse í þýðingum á undanförnum árum. Í fyrra kom út skáldsagan Naustið og ljóðaúrvalið Skýin eru skuggar og nú var að koma ný þýðing, fyrsti hluti stórvirkisins Sjöleikurinn eða Sepotologien I-II. Það er Hjalti Rögnvaldsson sem þýðir en hann hefur þýtt Fosse í yfir 20 ár, hann fékk hann á heilann að eigin sögn. Hjalti er búsettur í Svíþjóð hvaðan hann sendiir þýðingarhandritin handskrifuð til útgefandans, Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar hjá Dimmu en Aðalsteinn sér um að þýða ljóð Fosse. Við heimsækjum Aðalstein á skrifstofuna í síðari hluta þáttar og skoðum handritin, ræðum um Fosse og útgáfu hans og hringjum svo í Hjalta. Viðmælendur: Hjalti Rögnvaldsson, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Árni Matthíasson. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Embed this episode
NOW PLAYING
Sjöleikur Jons Fosse og nokkrar tilnefndar bækur frá Norðurlöndum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.