EPISODE · Jun 4, 2026 · 16 MIN
Sjúkrahúsið veitir loksins upplýsingar um verktakagreiðslur til lækna
from Þetta helst
Fastráðnir læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru með verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk sem námu á bilinu 33 milljónum og niður í rúmlega hálfa milljón króna fyrir þau árið 2024. Þetta eru verktakagreiðslur ofan á önnur laun sem eru mishá eftir starfshlutfalli. Níu læknar, eða eignarhaldsfélög þeirra og samlagsfélög í flestum tilfellum, fengu þessar verktakagreiðslur. Heildargreiðslur sjúkrahússins til þessara lækna fyrir þessi ferliverk námu rúmlega 124 milljónum króna árið 2024. Sjúkrahúsið á Akureyri veitti þessar upplýsingar eftir að fréttastofa RÚV kærði málið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál en áður en úrskurður í málinu féll. Samningar Sjúkrahússins á Akureyri við þessa fastráðnu lækna hafa verið talsvert í umræðunni frá því síðasta haust eftir að þeim var sagt upp á þeim grundvelli að þeir væru ólöglegir. Fjallað er um þessar verktakagreiðslur og samhengi málsins í þættinum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
NOW PLAYING
Sjúkrahúsið veitir loksins upplýsingar um verktakagreiðslur til lækna
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 2, 2026 ·47m
Jul 1, 2026 ·59m
Jun 26, 2026 ·26m
Jun 25, 2026 ·63m
Jun 25, 2026 ·56m