EPISODE · Jul 29, 2026 · 56 MIN
Skákin, þorskastríðin, Bobby Fischer og ESB: Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fv. stýrimaður
from Við skákborðið · host Útvarp Saga
Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið er Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður, kaupmaður og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Sigurður tók þátt í tveimur síðustu þorskastríðunum og rifjar upp reynslu sína af þeim sögulegu átökum.Í um fjóra áratugi hefur Sigurður jafnframt flutt inn náttúruvöruna „Rautt eðalginseng“, sem unnin er úr ginsengi ræktuðu í 800–1.000 metra hæð í Suður-Kóreu. Hann segir einnig frá kynnum sínum af Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, sem var mikill aðdáandi Rauðs eðalginsengs og notaði það reglulega.Stór hluti þáttarins er helgaður umræðu um Evrópusambandið og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður Íslands við ESB að nýju. Sigurður gerir grein fyrir afstöðu sinni, rökstyður andstöðu sína við áframhaldandi aðildarferli og segir frá því hvers vegna hann hyggst greiða atkvæði gegn því að viðræðurnar verði teknar upp á ný.Þeir Sigurður og Kristján ræða jafnframt heimsmeistaraeinvígið milli Gukesh D og Javokhirs Sindarovs, sem fram fer í Genf í Sviss dagana 25. nóvember til 15. desember 2026. Keppendurnir verða báðir tvítugir þegar einvígið hefst og verður þetta því yngsta heimsmeistaraeinvígi skáksögunnar. Einnig er fjallað um forsetakosningar Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, sem haldnar verða 26. september á allsherjarþingi sambandsins í Samarkand í Úsbekistan.
Embed this episode
Ready to play
Skákin, þorskastríðin, Bobby Fischer og ESB: Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fv. stýrimaður
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.