EPISODE · Jul 23, 2026 · 1H 7M
„Skemmdarverk á lýðræðislegri umræðu“ – Gauti B. Eggertsson um staðreyndir og rangfærslur
from Gímaldið · host Gímaldið
Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskóla í Bandaríkjunum segir það hafa verið hálfgerða tilviljun að hann fór að leggja sig fram um að leiðrétta rangfærslur í umræðu um Evrópumál og þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann hefur á undanförnum mánuðum birt greinar og útreikninga sem varpa ljósi á fullyrðingar í umræðunni sem ekki standast skoðun. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Gauta um þessa staðreyndavöktun, sem fer mikið til fram á samfélagsmiðlum, og um ógnir við lýðræðislega umræðu.Í þættinum kemur meðal annars fram:Ummæli Ólafs Ragnars um 25% atvinnuleysi ungmenna í Finnlandi byggja á misskilningi um mælingu atvinnuþátttöku. Hann gagnrýnir að slíkar upplýsingar séu bornar á borð fyrir fyrrverandi forseta og telur að Ólafur myndi aldrei fara viljandi með slíkar fleipur. Það sé illa gert að láta ungt fólk fá það á tilfinninguna að ef Ísland gengur í ESB verði erfitt að fá vinnuVaxtakjör almennings myndu klárlega batna við upptöku evru, enda eru raunvextir á Íslandi þeir hæstu í Evrópu. „Það er bara einfaldlega rangt“ að halda öðru fram, segir Gauti í viðtalinuGauti tekur dæmi um 60 milljóna króna húsnæðislán til 25 ára. Mánaðarlegar afborganir miðað við jafngreiðslulán væru 333.000 kr. á mánuði miðað við raunvexti á Íslandi en aðeins 220.000 kr. á evrusvæðinu. Alls fara 40 milljónir í vexti yfir lánstímann „í krónulandi“ en aðeins 6 milljónir „í evrulandi“ en hér má lesa grein Gauta um dæmiðTalan um að Ísland hafi aðeins tekið upp 13% af regluverki ESB er röng og byggir á að telja litla tilskipun um svínapest jafn þunga og heildar bankalöggjöf ESBFjölmiðlum ber ekki skylda til að gefa röngum og réttum upplýsingum jafnt vægi„Ég vildi að Íslendingar myndu temja sér betra hóf í þjóðfélagsumræðu og sérstaklega bera virðingu fyrir því að stundum eru hlutirnir réttir og stundum eru rangir,“ segir GautiGauti gagnrýnir „nýstárlegar kenningar“ um verðlag og segir engar deilur ríkja innan hagfræði um hvernig skilgreina beri verðlag. Tilraunir til að endurskilgreina verðlag sem hlutfall af tekjum snúi einfaldlega kaupmætti á hvolf og kalli það verðlag. Það sé eins og að segja að verðlag sé lægra á Seltjarnarnesi en í Reykjavík af því að fólk á Seltjarnarnesi sé með hærri launHann segir vel hægt að rökstyðja það að vilja vera utan ESB, þótt hann sé ekki á þeirri skoðun. Rökstuðningur á báða bóga verði þó að byggja á staðreyndum Hann segir afstöðu sína um að Ísland eigi að ganga í ESB grundvallast á fullveldi og varnar- og öryggismálumÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)
Embed this episode
NOW PLAYING
„Skemmdarverk á lýðræðislegri umræðu“ – Gauti B. Eggertsson um staðreyndir og rangfærslur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.