Slembiskák: Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson episode artwork

EPISODE · Dec 6, 2023 · 56 MIN

Slembiskák: Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson voru gestir Kristjáns Arnar í skákþætti hans Við skákborðið. Umræðuefnið var Fischer Random eða chess 960 sem á íslensku hefur hlotið nafnið slembiskák. Opinberu Íslandsmóti í slembiskák lauk um helgina með sigri stórmeistarans og stigahæsta skákmanns Íslands Hjörvars Steins Grétarssonar. Sigurbjörn og Magnús Pálmi voru á meðal keppenda og stóðu sig frábærlega, komust í undanúrslit og enduðu í 3. og 4. sæti á eftir alþjóðlega meistaranum Birni Þorfinnssyni sem hafnaði í 2. sæti.Magnús og Sigurbjörn fóru yfir helstu reglurnar í slembiskák, töluðu um sterkasta slembiskákmót allra tíma sem haldið verður í Þýskalandi í febrúar á nýju ári. Þar munu etja kappi átta af sterkustu skákmönnum heims en þeir eru: Magnus Carlsen Noregi (2830), Fabiano Caruana Bandaríkjunum (2794), Ding Liren Kína (2780), Alireza Firouzja Frakklandi (2763), Vincent Keymer Þýskalandi (2738), Nodirbek Abdusattorov Úsbekistan (2727), Levon Aronian Bandaríkjunum (2723) og Gukesh Dommaraju Indlandi (2720). Aldeilis elo-skákstigin á ferð þarna! Athygli vekur þó að núverandi heimsmeistari i slembiskák, en mótið fór fram í Reykjavík 2022, Hikaru Nakamura (2788) og fyrrverandi heimsmeistari í slembiskák Wesley So (2752) eru ekki á meðal keppenda. Bandaríkjamennirnir Nakamura og So eru skráðir #3 og #8 á stigalista FIDE yfir sterkustu skákmenn heims.Sú nýbreyttni varð að þessu sinni að hlustendum gafst kostur á að hringja inn í þáttinn og svara nokkrum "laufléttum" skákspurningum. Í verðlaun var bókin "Einvígi allra tíma" eftir Guðmund G. Þórarinsson en hann var forseti Skáksambands Íslands þegar heimsmeistaraeinvígi Spassky og Fischer fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík árið 1972.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 6, 2023

Embed this episode

NOW PLAYING

Slembiskák: Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson

0:00 56:41

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 56 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on December 6, 2023.

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!